Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 13. september 2025 14:15 Frá leik liðanna á síðasta tímabili. vísir/ernir Valur tók á móti Haukum á Hlíðarenda í dag í Olís deild kvenna. Leiknum lauk með þriggja marka sigri Hauka 21-24. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir átti góðan leik fyrir Hauka og skoraði 12 mörk. Haukakonur byrjuðu leikinn af krafti og voru komnar með fimm marka forystu eftir 7 mínútur. Valskonur tóku þá leikhlé og náði þjálfari liðsins aðeins að kveikja á sínum konum. Haukar fóru með fimm marka forystu inn í hálfleikinn, en Jóhanna Margrét Sigurðardóttir átti stórleik fyrir Hauka og var með átta mörk. Valur tóku aðeins við sér í síðari hálfleik og náðu að minnka muninn niður í tvö mörk. Það entist ekki lengi enda átti Sara Sif Helgadóttir, leikmaður Hauka, frábæran leik í markinu. Haukar héldu forystunni út leikinn og lokatölur því 21-24. Stjörnur og skúrkar Markahæstu leikmenn Hauka voru Jóhanna Margrét Sigurðardóttir með tólf mörk og Rakel Oddný Guðmundsdóttir með fimm mörk. Sara Sif Helgadóttir, markmaður Hauka, átti virkilega góðan leik í markinu og var með 18 vörslur. Stemning og umgjörð Góð stemning á Hlíðarenda en vantar fleiri stuðningsmenn í stúkuna. Dómarar Anton Gylfi Pálsson og Magnús Kári Jónsson, höfðu fín tök á þessum leik og fékk leikurinn að flæða vel. Olís-deild kvenna Valur Haukar