SVEIT sleppi ekki við milljónasektir Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. september 2025 18:03 Páll Gunnar Pálsson er forstjóri Samkeppniseftirlitsins og Einar Bárðarson framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT). Einar er framkvæmdastjóri hjá SVEIT. Vísir/Arnar/Vilhelm Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest að dagsektir upp á milljón krónur skuli leggjast á Samtök fyrirtækja í veitingarekstri (SVEIT) ef félagið afhendir Samkeppniseftirlitinu ekki gögn í seinasta lagi 6. október. Gögnin snúa að rannsókn á meintum samkeppnisbrotum.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samkeppnisefitrlitsins. Það var þann 11. júní sem Samkeppniseftirlitið tók ákvörðun um að leggja dagsektir á SVEIT vegna brota samtakanna á lagaskyldu til þess að afhenda eftirlitinu gögn. Samtökin höfðu haldið því fram að málið ætti ekki heima á borði efirlitsins. Málið snýr að því að í mars síðastliðnum hafi Samkeppniseftirlitinu borist kvörtun frá Alþýðusambandi Íslands, Eflingu og Starfsgreinasambandi Íslands vegna „ólögmæts verðsamráðs fyrirtækja á veitingamarkaði og ólögmæts verðsamráðs innan Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði“. Var því haldið fram að gerð SVEIT á einhliða kjarasamningi við félagið Virðingu, þar sem kveðið væri á um launakjör á veitingamarkaði, hafi farið gegn samkeppnislögum. „Í kvörtuninni er rökstutt að félagið Virðing sé „gervistéttarfélag“ og jafnframt að undanþága 2. mgr. 2. gr. samkeppnislaga frá gildissviði laganna vegna „launa eða annarra starfskjara launþega samkvæmt kjarasamningum“ eigi ekki við. Samkeppniseftirlitið ákvað að hefja rannsókn og óskaði eftir gögnum frá SVEIT, tilteknum aðildarfyrirtækjum SVEIT og Virðingu. Gögn hafa borist frá Virðingu og aðildarfyrirtækjum SVEIT sem gagnabeiðni var beint til. SVEIT kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og krafðist þess að hún yrði felld úr gildi. Byggði SVEIT á því að Samkeppniseftirlitið hefði ekki heimild til þess að rannsaka ætluð samráðsbrot og að gagnabeiðni eftirlitsins hefði verið of umfangsmikil. „Með úrskurði sínum í dag staðfesti áfrýjunarnefnd hins vegar ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Skal SVEIT greiða dagsektir að fjárhæð 1.000.000 kr. á dag ef gögnin hafa ekki borist Samkeppniseftirlitinu fyrir 6. október nk,“ segir á vef eftirlitsins.
Samkeppnismál Stéttarfélög Veitingastaðir Deilur Eflingar og SVEIT vegna Virðingar Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira