Macron telur Trump ekki fylgjandi innlimun Vesturbakkans Hólmfríður Gísladóttir skrifar 25. september 2025 06:50 Trump hefur ekki greint frá afstöðu sinni varðandi mögulega innlimun Vesturbakkans. AP Emmanuel Macron Frakklandsforseti segist hafa fengið staðfestingu á því hjá Donald Trump Bandaríkjaforseta að Bandaríkjastjórn sé ekki fylgjandi innlimun Vesturbakkans af hálfu stjórnvalda í Ísrael.
Macron sagði í samtali við France 24 í gær að hann teldi að Bandaríkjamenn hefðu dregið „rauða línu“ hvað þetta varðaði og þá ítrekaði hann þá afstöðu Sameinuðu arabísku furstadæmanna að innlimun Vesturbakkans í Ísrael myndi gera út um Abraham-sáttmálann frá 2020, um bætt samskipti Ísraels og Arabaríkjanna. Sáttmálinn var undirritaður í fyrri stjórnartíð Trump. Frakklandsforseti sagði Evrópu og Bandaríkin á „sömu blaðsíðu“ hvað varðaði fyrirhugaða uppbyggingu 3.400 nýrra heimila Ísraelsmanna á Vesturbakkanum. Breskir embættismenn hafa hins vegar viðrað áhyggjur af því að Trump muni viðurkenna yfirráðarétt Ísraels á byggðum á Vesturbakkanum, sem svar við ákvörðun Breta, Frakka, Ástrala og fleiri að viðurkenna sjálfstæða Palestínu. Þess hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu að Trump skýri afstöðu sína en ef hann setur sig upp á móti innlimun Ísraels á hlutum Vesturbakkans eða á svæðinu í heild, setur það Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, í nokkuð erfiða stöðu. Netanyahu, sem hefur gengið nokkuð lang til að halda ríkisstjórn sinni saman, er undir miklum þrýstingi frá samstarfsmönnum sínum um frekari „landvinninga“ á Vesturbakkanum. Þeir myndu hins vegar allt að því gera út um möguleikann á hinni svokölluðu „tveggja ríkja lausn“.
Ísrael Frakkland Bandaríkin Átök í Ísrael og Palestínu Palestína Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Fleiri fréttir Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Sjá meira