John Stones íhugaði að hætta í fótbolta Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. október 2025 12:33 Meiðsli hafa sett stórt strik í reikning Johns Stones í gegnum árin. epa/ADAM VAUGHAN Enski landsliðsmaðurinn hjá Manchester City, John Stones, íhugaði að leggja skóna á hilluna á síðasta tímabili vegna þrálátra meiðsla.
Stones spilaði aðeins ellefu leiki í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og missti af síðustu mánuðum þess vegna meiðsla. Í viðtali við BBC sagðist Stones hafa leitt hugann að því að hætta í fótbolta. „Síðasta tímabil var erfitt fyrir mig, svo erfitt að ég hugsaði um að hætta. Ég vildi ekki gera þetta. Ég hafði fengið nóg af því að vera svo faglegur og gera allt sem í mínu valdi stóð en brotna svo niður og standa eftir án svara. Þetta var mjög erfiður staður til að vera á,“ sagði Stones. Hann gekk í raðir City frá Everton fyrir níu árum en hefur misst mikið úr vegna meiðsla síðan hann kom til Manchester-liðsins. „Sú stund rennur upp þegar þú veist ekki af hverju þetta gerist og það er jafnvel erfiðara þegar þú leggur svo mikið í þetta til að spila. Síðan gerist eitthvað og það væri auðveldara að segja: Jæja, ég gerði ekki þetta eða hitt og þess vegna gerðist þetta. Þetta er krefjandi fyrir andlegu hliðina. Vonandi fer ég ekki aftur á þennan stað,“ sagði Stones og bætti við að hann hafi ekki hugsað skýrt þegar hann íhugaði að leggja skóna á hilluna. Stones hefur verið í byrjunarliði City í fimm leikjum á tímabilinu en virðist vera fyrir aftan Rúben Dias og Josko Gvardiol í goggunarröð miðvarða liðsins. City vann 0-1 sigur á Brentford í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Liðið er í 5. sæti með þrettán stig, þremur stigum á eftir toppliði Arsenal. Stones, sem er 31 árs, hefur unnið allt sem hægt er að vinna með City, meðal annars ensku úrvalsdeildina sex sinnum og Meistaradeild Evrópu einu sinni. Stones er í enska landsliðinu sem mætir Wales í vináttulandsleik á fimmtudaginn og Lettlandi í undankeppni HM 2026 á þriðjudaginn kemur.
Enski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjá meira