Unnu sextánda leikinn í röð og eiga heimsmetið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. október 2025 11:30 Achraf Hakimi og félagar í Marokkó hafa ekki tapað leik í tæp tvö ár. epa/JALAL MORCHIDI Landslið Marokkós í fótbolta karla setti heimsmet með sigri sínum á Lýðveldinu Kongó í fyrradag.
Marokkó vann Lýðveldið Kongó, 1-0, í lokaleik sínum í undankeppni HM 2026. Þetta var sextándi sigur Marokkóa í röð. Þar með bættu þeir heimsmetið sem var áður í eigu Spánverja. Frá 26. júní 2008 til 20. júní 2009 vann Spánn fimmtán leiki í röð. Marokkó jafnaði met Spánar með 1-0 sigri á Barein fyrir viku og bætti svo metið með því að vinna Lýðveldið Kongó á þriðjudaginn. Youssef En-Nesyri er aðalmarkaskorari Marokkóa.getty/Ulrik Pedersen Marokkó gerði markalaust jafntefli við Máritaníu 26. mars í fyrra. Síðan þá hefur liðið unnið sextán leiki í röð. Andstæðingarnir eru kannski ekki þeir sterkustu en Marokkó en fyrir utan Barein hefur liðið eingöngu unnið Afríkuþjóðir. Marokkó hefur unnið síðustu sjö leiki sína án þess að fá á sig mark. Níger var síðasta liðið sem skoraði gegn Marokkó, 21. mars á þessu ári. Brahim Díaz, leikmaður Real Madrid, spilaði einn landsleik fyrir Spán fyrir fjórum árum. Í fyrra byrjaði hann að spila fyrir landslið Marokkós.epa/JALAL MORCHIDI Á síðasta heimsmeistaramóti fyrir þremur árum varð Marokkó fyrsta Afríkuþjóðin til að komast í undanúrslit mótsins. Marokkóar ætla sér væntanlega stóra hluti á HM næsta sumar en þeir tryggðu sér sæti á mótinu í síðasta mánuði. Síðasta tap Marokkó kom gegn Suður-Afríku, 0-2, í sextán liða úrslitum Afríkukeppninnar 30. janúar í fyrra. Það er ekki einungis A-landslið Marokkós sem gerir það gott því U-20 ára liðið er komið í úrslit á HM í Síle. Marokkó sigraði Frakkland í vítaspyrnukeppni í undanúrslitunum.
HM 2026 í fótbolta Marokkó Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Fleiri fréttir Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Arsenal - Man. City | Fyrsti titill tímabilsins í boði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti Veik byrjun Vålerenga Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Sjá meira