Sjáðu ótrúlegt mark Hallgríms frá miðju Sindri Sverrisson skrifar 20. október 2025 08:02 Hallgrímur Mar Steingrímsson hefur nú skorað tólf mörk í Bestu deildinni í ár. vísir/Anton Hallgrímur Mar Steingrímsson gæti hafa skorað mark tímabilsins í Bestu deild karla í fótbolta í gær þegar hann skaut frá eigin vallarhelmingi og skoraði gegn ÍA.
Það voru skoruð glæsileg mörk í gær í leikjunum þremur sem skiptu svo miklu máli í fallbaráttu Bestu deildarinnar. Mörkin má sjá í spilaranum hér að neðan. Svo fór að sæti ÍA er nú tryggt, þrátt fyrir 5-1 tap gegn KA. KR vann ÍBV 2-1 en Afturelding og Vestri gerðu 1-1 jafntefli þar sem jöfnunarmark Ágústs Eðvalds Hlynssonar kom á síðustu sekúndu. Vestri (29 stig), KR (28 og Afturelding (27) berjast í lokaumferðinni næsta laugardag um að halda sér uppi. Vestri og KR mætast á Ísafirði og sigurliðið bjargar sér frá falli en geri liðin jafntefli dugar Aftureldingu að vinna ÍA til að komast upp fyrir þau bæði og bjarga sér. KR-ingar unnu ÍBV í gær með mörkum Arons Sigurðarsonar og Eiðs Gauta Sæbjörnssonar sem skoraði með glæsilegum skalla á 63. mínút. Öll mörkin komu á aðeins sjö mínútna kafla en Oliver Heiðarsson hafði jafnað metin fyrir ÍBV. Hrannar Snær Magnússon skoraði mark Aftureldingar sem virtist ætla að verða sigurmarkið gegn Vestra þar til á sjöttu mínútu uppbótartíma að Ágúst jafnaði metin eftir aukaspyrnu og hélt liðinu fyrir ofan fallstrikið. Á Akureyri skoraði Baldvin Þór Berndsen glæsimark til að koma ÍA yfir en Birgir Baldvinsson og Hallgrímur Mar komu KA yfir fyrir hálfleik. Ingimar Stöle og Ásgeir Sigurgeirsson bættu við mörkum í seinni hálfleik áður en Hallgrímur innsiglaði sigurinn með miðjumarkinu glæsilega en hann hefur þar með skorað tólf mörk í Bestu deildinni í ár.
Besta deild karla Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Handbolti Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið Körfubolti Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Enski boltinn Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Enski boltinn „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Grindavík 74-99 | Grindavík eltir Keflavík í úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Sjá meira