Stöðva rekstur Vélfags Árni Sæberg skrifar 11. nóvember 2025 15:31 Höfuðstöðvar Vélfags á Akureyri. Fyrirtækið selur ýmsan tæknibúnað sem tengist sjávarútvegi. Vélfag Stjórnendur Vélfags hafa ákveðið að stöðva starfsemi fyrirtækisins tímabundið og senda alla starfsmenn heim á meðan dóms er beðið í máli fyrirtækisins gegn íslenska ríkinu.
Í tilkynningu þess efnis á Facebook segir að vegna ákvörðunar utanríkisráðuneytisins um að hafna framlengingu á undanþágu Vélfags ehf. frá þvingunaraðgerðum hafi félagið neyðst til að stöðva starfsemi sína tímabundið og senda alla starfsmenn heim á meðan beðið er dóms í máli félagsins gegn íslenska ríkinu. Ákvörðun ráðuneytisins hafi í reynd svipt félagið aðgengi að eigin fjármunum og gert því ómögulegt að sinna daglegum rekstri, þar með talið greiðslum til starfsfólks og þjónustu við viðskiptavini. „Við erum miður okkar að geta ekki sinnt íslenskum og erlendum viðskiptavinum okkar á meðan, þar á meðal útgerðum sem reiða sig á þjónustu okkar og varahluti.“ Í tilkynningu utanríkisráðuneytisins í gær sagði að Vélfag hefði ítrekað grafið undan undanþágu sem það fékk frá þvingunaraðgerðum og því hafi framlengingu á henni verið hafnað. Vélfag hefur hafnað því að tengjast enn rússnesku félagi á þvingunarlista en stjórnarformaður þess hefur átt í viðskiptum við það á öðrum vettvangi. Arion banki frysti fjármuni Vélfags í júlí á grundvelli alþjóðlegra þvingunaraðgerða gegn Rússlandi vegna fjölþáttaógnar þaðan sem Ísland tekur þátt í. Ástæðan var ætluð tengsl Vélfags við rússneska félagið Norebo sem er talið tengjast svonefndum skuggaflota Rússa. Vélfag var selt aðeins þremur dögum áður en Norebo var sett á þvingunarlista og hafa grunsemdir verið uppi um að það hafi verið málamyndagjörningur. Utanríkisráðuneytið veitti Vélfagi tímabundna undanþágu frá frystingunni í sumar en hafnaði beiðni félagsins um að framlengja hana í gær. Ekki væri forsvaranlegt að viðhalda undanþágunni vegna ítrekaðra tilrauna Vélfags til þess að grafa undan tilgangi og markmiði hennar.
Viðskiptaþvinganir gegn Vélfagi Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Evrópusambandið Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira