Arna Sif aftur heim Aron Guðmundsson skrifar 12. nóvember 2025 19:25 Arna Sif mun aftur klæðast treyju Þór/KA Vísir/Vilhelm Arna Sif Ásgrímsdóttir er komin aftur heim til Akureyrar og hefur skrifað undir tveggja ára samning við Bestu deildar lið Þórs/KA.
Greint er frá þessu á vefsíðu liðsins núna í kvöld en Arna gengur endanlega í raðir Þór/KA þegar að samningur hennar við Val rennur út þann 16.nóvember næstkomandi. Stutt er síðan að Arna Sif sneri aftur á knattspyrnuvöllinn bæði eftir krossbandaslit sem og barnsburðarleyfi. Hún sneri aftur á völlinn undir lok síðasta tímabils og kom við sögu í fjórum leikjum með Val í Bestu deildinni en hafði fyrir það ekki spilað leik síðan í febrúar 2024 eða þegar að hún sleit krossband í leik með Val gegn Fylki í Lengjubikarnum en árin áður hafði hún verið með bestu leikmönnum Bestu deildarinnar. Arna Sif er fædd og uppalin á Akureyri og var ung að árum er hún skaust fram á sjónarsviðið með meistaraflokki Þór/KA. Nú telja leikirnir í meistaraflokki 425 leiki, 290 þeirra eru fyrir Þór/KA og þá hefur hún spilað nítján A-landsleiki fyrir Íslands hönd. Arna var fyrirliði í Íslandsmeistaraliði Þór/KA árið 2012 og hefur spilað sem atvinnumaður í Skotlandi, Svíþjóð og Ítalíu. „Stjórn Þórs/KA býður Örnu Sif velkomna aftur í okkar raðir. Það er mikið fagnaðarefni fyrir félagið og ekki síst yngri og reynsluminni leikmenn í okkar röðum að fá þessa öflugu og reynslumiklu knattspyrnukonu í okkar raðir. Hún á vafalaust eftir að reynast félaginu mikill styrkur, innan sem utan vallar, og væntum við mikils af henni,“ segir í yfirlýsingu Þór/KA sem má sjá í heild sinni hér.
Besta deild kvenna Þór Akureyri KA Íslenski boltinn Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Báðir þurfa bikar Enski boltinn „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Handbolti Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Enski boltinn Magnaður sigur Elísu og brautarmet á Ítalíu Sport Fleiri fréttir „Það var erfitt að anda“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Sjá meira