Ætla að flytja starfsemi Vogs Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. nóvember 2025 11:25 Anna Hildur Guðmundsdóttir er formaður SÁÁ. Vísir/Hulda Margrét SÁÁ hyggjast flytja starfsemi sjúkrahússins Vogs upp á Kjalarnes, þar sem önnur starfsemi samtakanna fer fram. Formaður SÁÁ segir um langtímaáætlun að ræða en draumurinn sé að hefja framkvæmdir á stórafmæli samtakanna. „
Vogur er orðinn óhagstæður og það er óhagstætt að reka stór hús. Við viljum færa spítalann í betra húsnæði þegar líða fram stundir. Þetta verður að veruleika en það eru svona fimm, sex, jafnvel sjö ár í það,“ segir Anna Hildur en mbl greindi fyrst frá. Hún segir að ákvörðun um að flytja starfsemi Vogs upp á Kjalarnes hafi verið tekin árið 2002 og nýr spítali teiknaður upp árið 2012. Efnahagsástand hafi haft áhrif á framkvæmdina en nú sé loks verið að taka næstu skref í átt að nýrri byggingu. Auk þess sem húsnæði Vogs sé óhagstætt í rekstri eru að auki gerðar aðrar kröfur á sjúkrahúsi í dag heldur en árið 1983 þegar byggingin var reist. Tími sé kominn til að nútímavæða sjúkrahúsið, til að mynda með kynjaskiptingu og einkasalernum. „Í dag eru kröfurnar þannig að fólk á rétt á einkaherbergjum með betri salernisaðstæðum. Vogur er í dag í miðri borg, þegar hann var byggður á sínum tíma var hann í útjaðri borgarinnar,“ segir Anna Hildur. Einnig sé það hagsýnt að hafa Vog og Vík nálægt hvort öðru þar sem að lokinni meðferð á Vogi liggur leið skjólstæðinganna á Vík. Einnig munu skrifstofur SÁÁ vera á staðnum. Göngudeild SÁÁ verður hins vegar áfram í Efstaleiti þar sem að þar leitar fólk sér aðstoðar á daginn sem þarfnast auðveldara aðgengis. Draumurinn að hefja framkvæmdirnar á stórafmælinu Meðal skrefa að flutningunum var að óska eftir áliti Reykjavíkurborgar um hvort uppbygging á lóð SÁÁ á Kjalarnesi, þar sem meðferðarheimilið Vík er, væri leyfð. Anna Hildur segir að ekkert hafi verið til fyrirstöðu að byggja, en enn eigi eftir að ræða við ríkið. „Við viljum hafa öll lög og reglur með okkur. Við ætlum að gera þetta í samstarfi við ríkið, auðvitað munum við byggja sjálf en við viljum ekki fara í framkvæmdir og vita svo ekki hvort þau kaupi þjónustuna,“ segir hún. SÁÁ fagnar fimmtíu ára afmæli eftir tvö ár og segir Anna Hildur drauminn að hefja byggingu hússins þá.
SÁÁ Fíkn Reykjavík Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira