Árekstur rútu rannsakaður sem manndráp af gáleysi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. nóvember 2025 09:51 Málið er rannsakað sem manndráp af gáleysi. EPA Þrír eru látnir og aðrir þrír slasaðir eftir að tveggja hæða rúta lenti á biðskýli í miðborg Stokkhólms. Rútubílstjórinn var handtekinn á vettvangi en engar vísbendingar eru um að atvikið hafi verið viljandi.
Fjöldi viðbragðsaðila var kallaður út á vettvang síðdegis í gær þegar rútan lenti á biðskýlinu sem er við Valhallvagen-götu í miðborg Stokkhólms. Um er að ræða umferðarþunga götu og var háannatími umferðar. Bílstjórinn var einn inni í rútunni. Þrír létust og þrír slösuðust, þar af tveir alvarlega og liggja þeir enn inni á sjúkrahúsi. Rútubílstjórinn er einnig á sjúkrahúsi en ekki talinn alvarlega slasaður. Lögregla hefur enn ekki Samkvæmt BBC sáu vitni rútuna keyra yfir röð af fólki sem beið rútunnar. Hún hafi svo endað á staur fyrir framan biðskýlið. „Það hljóta að hafa verið fleiri undir rútunni,“ sagði vitni. Bílstjórinn handtekinn Bílstjóri rútunnar var handtekinn á vettvangi og verður hann yfirheyrður. Í tilkynningu frá lögreglu segir að ekki væru vísbendingar um að atvikið hefði verið viljandi og er það rannsakað sem manndráp og líkamsmeiðingar af gáleysi. „Greyið maðurinn, ég veit ekki hvað ég á að segja. Hann var svo sleginn. Þegar lögreglan fór með hann út úr rútunni sá hann fólk á jörðinni sem hafði látist og það sló hann enn meira,“ sagði vitni í samtali við SVT. Sænska rannsóknarnefnd slysa rannsakar nú málið með lögreglu. Blóm og kerti á vettvangi Rútan hefur verið fjarlægð af vettvangi en í stað hennar hefur fólk komið fyrir blómum og kertum á vettvangi. Fólk hefur komið fyrir kertum á vettvanginum.EPA Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svía, sagði í tilkynningu að hugur hans væri fyrst og fremst með þeim sem lentu í atvikinu og aðstandendum þeirra.
Svíþjóð Samgönguslys Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Erlent Fleiri fréttir Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Sjá meira