Mál ríkisendurskoðanda á borði forsætisnefndar Lovísa Arnardóttir skrifar 19. nóvember 2025 18:05 Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi. Vísir/Vilhelm Forsætisnefnd Alþingis hefur borist formlegt erindi um mannauðsmál Ríkisendurskoðunar. Bryndís Haraldsdóttir, 1. varaforseti þingsins, staðfestir í samtali við fréttastofu að málið og gögnin séu komin til nefndarinnar. Málið sé nú á borði forseta þingsins.
Fyrst var fjallað um á vef RÚV. Þar kemur fram að Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti þingins, staðfesti að málið sé á borði nefndar en að hún hafi ekki enn fjallað um það. Þar kemur enn fremur fram að næsti fundur nefndarinnar sé á mánudag en það fari eftir verkefnastöðu hvort málið komist að á þeim fundi. Fjallað hefur verið um það síðustu vikur að ófremdarástand hafi ríkt um nokkurt skeið innan stofnunarinnar eða frá því fljótlega eftir að Guðmundur Björgvin Helgason var kjörinn ríkisendurskoðandi af Alþingi. Ítrekað hafi komið upp svokölluð EKKO-mál, sem varða einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi. Guðmundur Björgvin þvertekur fyrir það og segir starfsandann góðan hjá embættinu. Ítarlega var fjallað um niðurstöður vinnustaðagreiningar á vinnustaðnum á Vísi í síðasta mánuði. Hann sagði við lok síðasta mánaðar að hann teldi ekki ástæðu fyrir sig að íhuga stöðu sína. Hann sagði enga formlega tilkynningu hafa borist til embættisins frá starfsfólki um einelti, kynbundið eða kynferðislegt áreiti eða ofbeldi. Hann myndi taka á slíkum málum. Hann harmar að innri mál embættisins séu til umfjöllunar í fjölmiðlum og hefur ekki íhugað stöðu sína. Í upphafi mánaðarins sagðist Jóhannes Jónsson, sviðsstjóri hjá Ríkisendurskoðun, hafa reynt að leysa úr þessu ófremdarástandi en það hafi ekki tekist. Þögn Alþingis sé óskiljanleg en þingmenn hafa völd til að vísa ríkisendurskoðanda úr embætti. Jóhannes er nú í veikindaleyfi og hyggst ekki snúa aftur vegna ástandsins. Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sagði í upphafi mánaðar að hann vildi kanna hvort þingið gæti aðhafst í máli Ríkisendurskoðanda. Hann hyggst funda með Þórunni Sveinbjarnardóttur forseta þingsins vegna málsins.
Ríkisendurskoðun Alþingi Stjórnsýsla Vinnustaðurinn Mannauðsmál Tengdar fréttir Vill að þingið skoði mál Ríkisendurskoðanda Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar vill kanna hvort þingið geti aðhafst í máli Ríkisendurskoðanda. Hann hyggst funda með Þórunni Sveinbjarnardóttur forseta þingsins vegna málsins. 5. nóvember 2025 18:55 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira
Vill að þingið skoði mál Ríkisendurskoðanda Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar vill kanna hvort þingið geti aðhafst í máli Ríkisendurskoðanda. Hann hyggst funda með Þórunni Sveinbjarnardóttur forseta þingsins vegna málsins. 5. nóvember 2025 18:55