Reyna að leika eftir frækinn sigur: „Gefur okkur trú á verkefninu“ Aron Guðmundsson skrifar 27. nóvember 2025 08:31 Tryggvi Snær Hlinason er á sínum stað í íslenska landsliðshópnum fyrir leikinn gegn Ítölum í kvöld. Vísir / Hulda Margrét Íslenska karlalandsliðið í körfubolta hefur leik í undankeppni HM 2027 á útivelli gegn Ítalíu í kvöld. Liðið býr að góðri reynslu þar eftir að hafa lagt Ítali að velli fyrir ári síðan í einum fræknasta sigri i sögu landsliðsins og segir aðstoðarþjálfarinn það hjálpa til komandi inn í leik kvöldsins.
Uppselt er á leik liðanna í D-riðli í kvöld og stemning hjá heimafólki fyrir þessum fyrsta leik beggja liða í undankeppninni en auk Íslands og Ítalíu eru landslið Bretlands og Litháen í riðlinum. Þrjú efstu lið riðilsins að lokinni riðlakeppni vinna sér inn sæti á næsta stigi undankeppninnar. Andstæðingur kvöldsins, ítalska landsliðið, er mjög hátt skrifaður og því verðugt verkefni fram undan fyrir strákana okkar. Hágæða leikmenn í flestum stöðum „Eins og leikir eru á móti þessum stórþjóðum þá er mikið að varast,“ segir Baldur Þór Ragnarsson, einn af aðstoðarþjálfurum íslenska landsliðsins í samtali við íþróttadeild. Baldur Þór á hliðarlínunni með Craig Pedersen, landsliðsþjálfara Íslands á Eurobasket fyrr á árinu.Vísir/Hulda Margrét „Mikið af gæðum sem þeir bjóða upp á. Þarna eru margir leikmenn sem við höfum spilað við áður, en auðvitað vantar einhverja líka. Stefano Tonut hefur verið okkur erfiður, þá er Gabriele Procida frábær leikmaður sem spilaði með Martin Hermannssyni í fyrra. Svo eru þeir komnir með Bandaríkjamann sem er með ítalskt vegabréf í John Petrucelli sem spilar í efstu deild á Ítalíu, hágæða leikmaður. Í flestum stöðum eru þetta leikmenn á hæsta gæðastigi leiksins, annað hvort á Ítalíu eða sterkari deildum.“ Góður taktur, gleði og liðsheild Um er að ræða fyrsta verkefni íslenska landsliðsins síðan á EuroBasket í sumar en síðan þá hefur samningur landsliðsþjálfarans Craig Pedersen verið endurnýjaður til ársins 2029. Baldur segir góða stemningu og trú ríkjandi í landsliðshópnum fyrir komandi verkefni. Íslenska liðið er að koma aftur saman í fyrsta skipti síðan á EuroBasket fyrr á árinuVísir/Hulda Margrét „Við þekkjumst vel, vorum mikið saman í sumar, það er mjög gott samband á milli leikmanna og liðsheild. Mikil gleði að vera komnir saman. Eins og alltaf þurfum við að ná í varnarstopp á þessu gæðastigi, við teljum okkur geta búið til góð skot og skorað. Við erum með sóknarleik á háu gæðastigi en auðvitað þarf að fylgja alls konar með og menn þurfa að hitta á daginn sinn. En við erum með leikmenn í góðum takti á miðju tímabili. Þetta þarf að vera samblanda af góðum sóknar- og varnarleik á sama tíma. “ „Eitthvað sem gefur okkur trú“ Og menn búa að góðri reynslu frá útileikjum gegn Ítalíu því fyrir nær akkúrat ári síðan í undankeppni EuroBasket leit dagsins ljós íslenskur sigur. Sjö stiga sigur sem er að margra mati einn fræknasti sigur íslenska lands liðsins í sögunni á útivelli. Sigur sem landsliðið býr að komandi verkefni. „Við höfum gert þetta áður, við höfum náð í sigur hérna. Þar voru allir í ákveðnu flæði, allir sem snertu á leiknum komu með gæði inn í þetta. Það er eitthvað sem gefur okkur trú á verkefninu.“ Eigum við von á því að Ítalirnir vilji hefna fyrir þessar ófarir sínar í fyrra? „Auðvitað. En á sama spiluðum við einhvern æfingarleik við þá fyrir EuroBasket og maður fann að þeir voru rosa mikið að hefna þá. Kannski telja þeir sig vera búnir að hefna en það kemur bara í ljós.“ Aðrir muni nýta tækifærið Kristinn Pálsson, leikmaður Aurora á Ítalíu, hefur leikið stórt hlutverk í íslenska landsliðinu og var drjúgur fyrir liðið í téðum sigurleik gegn Ítölum fyrir ári síðan þar sem að hann var stigahæsti leikmaður liðsins. Hann er hins vegar fjarri góði gamni í kvöld vegna meiðsla. Hvaða áhrif hefur það? Kristinn í leik með íslenska landsliðinuVísir/Hulda Margrét „Það þurfa þá bara aðrir að stíga upp. Kristinn er búinn að stíga upp með landsliðinu síðasta eina og hálfa árið. Hann er orðinn frábær leikmaður, framúrskarandi skotmaður og með leikskilning á háu stigi. Þá veit hann hvernig er að spila á þessu gæðastigi. Auðvitað er ekki gott að hafa hann ekki með, sömu sögu er að segja með Kára Jóns sem er frábær í hópnum og frábær landsliðsmaður. Við erum náttúrulega bara heppin með að það eru til staðar fleiri góðir leikmenn sem eru með gæðin í að taka stærri hlutverk að sér. Þeir munu nýta það.“ Leikur Ítalíu og Íslands í undankeppni HM 2027 í körfubolta hefst klukkan sjö í kvöld og verður lýst í beinni textalýsingu hér á Vísi.
Landslið karla í körfubolta HM 2027 í körfubolta Körfubolti Mest lesið Allt í skrúfunni fyrir HM: „Enginn viðburður“ Fótbolti „Svo hringdi kærastan mín og ég er búinn að vera hér síðan“ Íslenski boltinn Þrumuræða Óskars Hrafns: „Kremja þá eins og fokking skordýr undir sólanum á okkur“ Íslenski boltinn Oddaleikirnir á sitt hvorri rásinni Körfubolti Besta sumarvinna sögunnar? Fótbolti Þorleifur: Ég verð ekki með liðið á næsta ári Körfubolti „Ekkert grín heldur algjörlega fáránlegt“ Íslenski boltinn Sagður þjást en vill enga vorkunn Enski boltinn DeChambeau mun einbeita sér að Youtube ef LIV verður að engu Golf Röð áfalla en trúin til staðar: „Ekkert pláss fyrir bull“ Körfubolti Fleiri fréttir Röð áfalla en trúin til staðar: „Ekkert pláss fyrir bull“ Oddaleikirnir á sitt hvorri rásinni Fór úr fingurlið og menn gátu ekki horft Þorleifur: Ég verð ekki með liðið á næsta ári Hulda: Náðum góðum stoppum og þá kemur sóknin Blikar jöfnuðu úrslitaeinvígið Uppgjör: Njarðvík - Grindavík 83-72 | Njarðvíkingar sigldu í úrslitaeinvígið Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna fyrir oddaleik gegn Tindastól Wembanyama setti met og varði tólf skot en Úlfarnir unnu Furðar sig á æðibunuganginum: „Bæði lið fá að bíða jafn stutt“ Faðir leikmanns Grindavíkur gagnrýnir liðið: „Fyrir neðan allar hellur“ Umfjöllun: Valur 85-79 Grindavík | Einvígið fer í oddaleik Segir að leikaraskapur Embiids sé að eyðileggja körfuboltann Annað liðið á tveimur dögum sem kemur til baka eftir að hafa lent 3-1 undir „Þegar ég sá hann fara ofan í var ég bara: Guð minn góður“ „Einn af mínum bestu leikjum á tímabilinu“ Stjarnan - Tindastóll 97-103 | Stólarnir knúðu fram oddaleik Engin Evrópuþynnka og mikilvægur sigur Fullkomnuðu endurkomuna og hentu Boston út Þegar Síkið þagnaði: „Keyri bara á körfuna og legg hann ofan í“ Tatum bættist óvænt við meiðslalistann fyrir oddaleikinn Sindri stígur fyrsta skrefið í átt að úrvalsdeild Uppgjörið: Keflavík - Haukar 72-98 | Haukar unnu og geta varið titil sinn Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Tíu stoðsendingar Martins dugðu skammt í toppslagnum Hvergi nærri hættur með KR „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Stjörnufólk stendur í ströngu á sunnudaginn Sjá meira