Símon vildi að Albert fengi tvö og hálft ár Árni Sæberg skrifar 27. nóvember 2025 17:23 Símon Sigvaldason er dómari við Landsrétt. Vísir Landsréttardómarinn Símon Sigvaldason, skilaði sératkvæði í máli Alberts Guðmundssonar og taldi að sakfella hefði átt Albert og dæma í tveggja ára og sex mánaða fangelsi. Hann hefur verið kallaður Símon grimmi vegna hás sakfellingarhlutfalls hans í gegnum tíðina.
Í atkvæðinu segist hann telja að leggja hefði átt framburð brotaþola til grundvallar niðurstöðu, en hann hafi að hans mati verið trúverðugri en framburður Alberts um meginatriði málsins og fengið mikinn stuðning af rannsóknargögnum málsins. Telur lykilvitni vilhallt Meðal þess sem Símon tiltekur í atkvæði sínu er að hann telji eitt lykilvitna í málinu hafa verið ótrúverðugt og vilhallt en í málinu kom fram að vitnið væri æskuvinur Alberts og hefði aldrei hitt brotaþola fyrir umrætt kvöld. Þá telji hann að aðgerðir brotaþola og líðan í kjölfar atvika málsins varpi skýru ljósi á að eitthvað mun alvarlegra hafi átt sér stað umrætt sinn heldur en Albert hafi viljað viðurkenna. Að teknu tilliti til meginreglna sakamálaréttarfars telji hann að fram hafi verið komin nægjanleg sönnun um sekt Alberts til að telja hana sannaða. „Ég tel því að sakfella beri ákærða fyrir nauðgun samkvæmt ákæru og dæma hann í fangelsi í tvö ár og sex mánuði.“ Ragnheiður Bragadóttir, dómsformaður í málinu, samdi dóminn og Ásmundur Helgason myndaði meirihluta með henni um niðurstöðu málsins um sýknu Alberts. Ásmundur skilaði þó sératkvæði sem varðaði forsendur héraðsdóms fyrir því að skilyrði refsiábyrgðar Alberts væru ósönnuð. Hann hefði ekki viljað fallast á þær forsendur að öllu leyti, líkt og gert er í dómi Landsréttar. Fréttin hefur verið uppfærð. Í fyrri útgáfu sagði að Ragnheiður Bragadóttir lagaprófessor, sem hefur um árabil stundað rannsóknir á löggjöf og dómaframkvæmd í kynferðisbrotamálum, hafi verið dómsformaður í málinu. Hið rétta er að hún á alnöfnu sem er Landsréttardómari og var dómsformaður í málinu.
Mál Alberts Guðmundssonar Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi Kynferðisofbeldi Dómsmál Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira