Alvarlegt umferðarslys á Suðurstrandarvegi Atli Ísleifsson og Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifa 2. desember 2025 09:10 Þyrla Landhelgisgæslunnar fór til móts við sjúkrabíl og lenti á Krýsuvíkurvegi til að koma hinum slösuðu sem fyrst undir læknishendur. Vísir/Vilhelm Alvarlegt umferðarslys var á Suðurstandarvegi, rétt austan afleggjarans við Vigdísarvelli, í morgun. Tveir eru alverlega slasaðir og standa aðgerðir yfir á vettvangi. Þyrla Landhelgisgæslunnar fór til móts við sjúkrabíl til að koma hinum slösuðu eins fljótt og hægt er á Landspítalann.
Eyþór Rúnar Þórarinsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Hann segir að bíll hafi þar oltið. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning um slysið klukkan 8:24 í morgun. „Fjölmennt lið viðbragðsaðila frá lögreglunni á Suðurnesjum, Brunavörnum Suðurnesja og Slökkviliði Grindavíkur fóru á vettvang. Ljóst var á vettvangi að um bílveltu var að ræða og tveir einstaklingar alvarlega slasaðir. Slasaðir voru fluttir með sjúkrabifreið til móts við þyrlu Landhelgisgæslunnar sem er að flytja þá á sjúkrahús. Unnið er að vettvangsrannsókn í samstarfi við tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Frekari upplýsingar verða ekki veittar að svo stöddu,“ segir í tilkynningu lögreglu. Eyþór segir aðstæður á vettvangi erfiðar og mikil hálka sé á svæðinu. Varðstjóri hjá Brunavörnum Suðurnesja segir í samtali við fréttastofu á tólfta tímanum að hvorugir hafi verið í bílbeltum og hafi þeir báðir kastast út úr bílnum. Annar mannanna festist síðan undir farartækinu. Samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar er Suðurstrandarvegur á milli Grindavíkur og gatnamóta að Krýsuvíkurvegi lokaðir vegna slyssins. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð til aðstoðar að beiðni lögreglunnar. Sveitin flaug til móts við sjúkrabíl og lenti á Krýsuvíkurvegi þaðan sem hún kemur til með að flytja annað hvort einn eða tvo slasaða með þyrlu á Landspítalann í Reykjavík samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni. Fréttin hefur verið uppfærð.
Grindavík Samgönguslys Slökkvilið Lögreglumál Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira