Þegar vitvél fær spurningu um nasisma og allt fer í háaloft Forlagið 2. desember 2025 14:29 Haukur Már Helgason sendi nýlega frá sér skáldsöguna Staðreyndirnar. Mynd/Gunnar Freyr Steinsson. Nýlega kom út hjá Forlaginu nýjasta skáldsaga Hauks Más Helgasonar sem ber heitið Staðreyndirnar. Um er að ræða hárbeitta satíru um ólík tilbrigði við þögn, um uppgjöf andspænis voðaverkum, uppgjör sem aldrei fer fram og þolinmæði þeirra afla sem enn bíða þess í ofvæni að lýðræðis- og frelsisbylgju síðustu áttatíu ára ljúki. Skáldsaga um vélrænt vit, mannasiði og nasista.
Steini, aðalsögupersóna bókarinnar, er boðin staða hjá nýstofnaðri Upplýsingastofu eftir að framtíð hans er úti í stjórnmálum. Þar á hann að leiða þróun opinbers staðreyndagrunns, vitvélar sem á að gegna lykilhlutverki í baráttu stjórnvalda gegn upplýsingaóreiðu. Verkefnið lofar góðu þar til háskólanemi ber upp eldfima spurningu við vélina um áhrif nasisma á stjórnarfar á Íslandi. Haukur Már Helgason er heimspekingur að mennt og hefur ritað, þýtt og ritstýrt ýmiss konar efni um heimspeki og pólitík, auk þess sem hann hefur starfað sem blaðamaður og skrifað og þýtt skáldskap. Áður hafa komið út þrjár skáldsögur eftir Hauk Má; Svavar Pétur og 20. Öldin (2006), Ó – um þegnrétt tegundanna í íslenskri náttúru (2019) og Tugthúsið (2022). Hvernig kviknaði hugmyndin að þessari skemmtilegu bók? „Í bókinni fléttast saman tvær hugmyndir eða meginþræðir. Annar þeirra eru yfirstandandi átök við þetta sem er kallað upplýsingaóreiða, hinn er hvernig samfélag getur átt erfitt með að gera upp vissa þætti í eigin sögu og taka þá til skoðunar. Bókin fór að mótast þegar þessir tveir þræðir rákust hvor á annan. Saman rákust þeir loks á þennan nýja sögumann sem er jöfnum höndum alvitur og óáreiðanlegur, vitvélina sem á orðið svolítinn hluta af bókinni.“ Í bókinni tekur þú fyrir nokkur umdeild málefni sem hafa verið ofarlega í umræðunni síðustu ár, t.d. falsfréttir, slaufanir, gervigreind og pólítíska vinagreiða. Ertu að skjóta föstum skotum? „Það væri áreiðanlega hægt að skjóta fastari skotum um öll þessi viðfangsefni með blaðagreinum og bloggfærslum. Skáldsaga er frekar hentug til að flækja hluti en einfalda þá, og getur verið forvitnileg aðferð til að rannsaka krísur, mótsagnir og bresti. Aðalpersóna er svona eins og guli kallinn í Google Maps, maður droppar honum inn í aðstæður og þá birtast þær allt í einu sem eitthvað annað en kort, verða vettvangur.“ Í bókinni er komið inn á uppgang nasismans á Íslandi fyrir seinni heimsstyrjöld. Er þetta eldfimt efni til að fjalla um árið 2025? „Sumar hliðar viðfangsefnisins virðast að minnsta kosti enn hafa verið tiltölulega lítið rannsakaðar. Mér sýnist það meðal annars vera vegna gamalla ákvarðana stjórnvalda og meðferðar þeirra á gögnum. Hvort það er eldfimt 80 árum síðar veit ég ekki. Hugsanlega er það lærdómsríkt. Og kannski er það þó fyrst og fremst, eins og aðrir misbrestir, nothæfur efniviður í sögu.“ Hvað ertu helst að lesa þessa dagana? „Þessa dagana les ég mikið af barnabókum og þá helst sömu bækurnar aftur og aftur. Upphaflega bókin um Paddington bangsa er frábær, bæði mál og mynd. Þá leynast miklir fjársjóðir í röðinni „Skemmtilegu smábarnabækurnar“. Þar á meðal er til dæmis Kanínan sem hvíslaði, eftir Margaret Wise, bandarísk barnaklassík frá 20. öld. Kanínan þarf að vekja býflugu sem festist í hálsinum á henni. Meinið er – og það er allt annað dýr sem útskýrir þetta fyrir kanínunni, greiðvikinn bjór eða otur – að býflugur eru svo litlar að þær heyra bara mjög lág hljóð. Kanínan gerir því ótal tilraunir til að framkalla minnsta mögulega hávaða með raddfærunum sínum. Af íslenskum barnabókum eru Snuðra og Tuðra eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur að koma sterkar inn, þó að fyrsta bókin sé þó heldur blóðugri og meira gorí en leshringurinn minn bjóst við.“
Bókmenntir Bókaútgáfa Mest lesið Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Gagnrýni Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Lífið samstarf Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Pulp Fiction leikarinn Peter Greene látinn Bíó og sjónvarp Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Lífið Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Lífið Fleiri fréttir Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Metsölulisti og enn betra bókaverð í Nettó Hröð og skemmtileg rússíbanareið EKOhúsið sér um umhverfisvænu jólagjafirnar Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Samsæri á Paradísareyjunni Bjóða upp á jólakaffi allar helgar fram að jólum Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Snörp og áhrifamikil bók Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Vestfirsk náttúra skapar dulúð í nýjustu bók Margrétar S. Höskuldsdóttur Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Útreiðartúrinn leiðir lesendur inn í flókið net fjölskyldu, vináttu og leyndarmála Himnesk rúmföt úr egypskri bómull Nóvella sem leiðir lesandann inn í söguna á nýjan hátt Uppselt á stórtónleika Bubba – aukatónleikar fara í sölu á morgun Þegar vitvél fær spurningu um nasisma og allt fer í háaloft The Barricade Boys koma til Íslands með Broadway Party Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Sjá meira