Trump fékk Friðarverðlaunin og setti verðlaunapeninginn strax um hálsinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. desember 2025 17:46 Donald Trump er fyrsti handhafi nýju Friðarverðlauna FIFA. Hann var fljótur að setja verðlaunapeninginn um hálsinn. Getty/Kevin Dietsch Donald Trump Bandaríkjaforseti fékk í kvöld fyrstu Friðarverðlaun FIFA og hann kom upp á svið á HM-drættinum eftir langa lofræðu um hvað hann hefði gert mikið fyrir frið í heiminum.
Trump fékk bæði bikar og verðlaunapening sem hann setti strax um hálsinn á sér. Hann var virkilega sáttur með verðlaunin. Gianni Infantino fór yfir af hverju Trump fær þessi verðlaun. Gaman að gefa besta vini sínum verðlaunin sem hann fékk ekki hjá Nóbelnum á dögunum. Infantino stofnaði verðlaunin án alls samráðs við aðra stjórnendur FIFA, sambandið hefur ekki svarað fyrirspurn Amnesty um valnefnd eða viðmið varðandi verðlaunin og sagði fyrr í ár að Trump hafi átt að fá friðarverðlaun Nóbels. Bandaríkjaforseti tók við verðlaunapeningnum sínum og setti hann strax um hálsinn á sér, áður en Gianni Infantino hrósar honum með því að lesa af opinberu verðlaunaskjali FIFA og segja honum hversu frábær hann sé. „Við viljum sjá von, við viljum sjá einingu, við viljum sjá framtíð,“ segir Gianni. „Þetta er það sem við viljum sjá frá leiðtoga og þú átt svo sannarlega skilið fyrstu friðarverðlaun FIFA. Þú getur alltaf reitt þig á stuðning minn til að hjálpa þér að koma á friði um allan heim. Þakka þér fyrir, herra forseti.“ „Þetta er einn mesti heiður sem mér hefur hlotnast um ævina. Við höfum bjargað milljónum og aftur milljónum mannslífa. Við höfum getað bundið enda á svo mörg stríð. Tölurnar fyrir heimsmeistaramótið eru langt umfram það sem við töldum mögulegt. Við ætlum að halda viðburð sem er stærri en nokkuð sem heimurinn hefur séð,“ sagði Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
HM 2026 í fótbolta Donald Trump Mest lesið John Cena hættur að glíma Sport Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Fótbolti Þjálfari Orra Steins látinn fara Fótbolti Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Enski boltinn „Gott fyrir svæðið, félagið og stuðningsmennina“ Enski boltinn Fleiri fréttir Calvert-Lewin jafnaði fyrir Leeds í lokin Hákon fann skotskóna í fyrsta sinn síðan í október „Gott fyrir svæðið, félagið og stuðningsmennina“ Sunderland vann nágrannaslaginn fyrir norðan Glódís fékk hvíld og leiðir liðið bráðum út á nýjan heimavöll Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Sangaré og Hudson-Odoi hrelltu Tottenham Eigendur Juventus vildu ekki selja og nú þurfa leikmenn að sanna sig Þjálfari Orra Steins látinn fara Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö David Silva: Ég var sá fyrsti sem Beckham vildi fá til Inter Miami Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ „Stundum þarf maður heppni“ Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Tómas Bent og félagar með sex stiga forystu á toppnum „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Evrópumeistararnir í vandræðum með botnliðið Raphinha reddaði málunum fyrir Börsunga Brynjólfur með langþráð mark Fulham vann í markaleik á Turf Moor Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Viktor Bjarki skoraði enn eitt markið Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik „Kannski áttum við heppnina skilið í dag“ „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ „Þegar þú spilar fyrir Liverpool verðurðu bara að vinna leiki“ Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Cecilía fagnaði stórsigri gegn erkifjendunum Sjá meira