Konráð kveður á mildan hátt Lestrarklefinn 17. desember 2025 10:17 Arnaldur er tekinn fyrir í Lestrarklefanum. Jana Hjörvar tekur nýjustu bók Arnaldar Indriðasonar fyrir á menningarvefnum Lestrarklefinn. Hún hefur þetta að segja um bókina.
Á sama hátt og skammdegið mætir á seinni hluta ársins þá mætir líka ný bók eftir Arnald Indriðason. Hvernig væri jólabókaflóðið án bókar eftir hann? Smá skrítið kannski fyrir vanafasta lesendur eins og mig. En nú í ár heitir bók Arnaldar, Tál og það verður að viðurkennast að það var dálítið sérstök tilfinning að opna hana og vita að hér væri komin síðasta bókin um fyrrverandi lögreglumanninn Konráð. Jú kæra fólk, þetta er nefnilega síðasta bókin um Konráð. Við sem höfum fylgt honum leysa mál eftir mál og í gegnum leyndarmál og gamlar syndir í myrkri borgarinnar erum líklega flest spennt að sjá hvernig Arnaldur bindur hnútinn á sögu hans. Jana Hjörvar fjallar reglulega um bækur á menningarvefnum Lestrarklefinn Löng nótt hlaðin vafasömum persónum Eiginkona í öngum sínum nálgast Konráð og biður hann um aðstoð. Eiginmaður hennar, héraðsdómari, hefur verið handtekinn grunaður um morð á konu sem virðist hafa starfað fyrir fylgdarþjónustu. Hefst þá atburðarrás þar sem Konráð heldur af stað inn í langa nótt þar sem hann reynir að komast til botns í málinu. Hann flakkar á milli einstaklinga sem mögulega gætu haft upplýsingar sem gagnast honum í rannsókn sinni. Hann hittir fyrir morðingja nýsloppinn úr fangelsi, vændiskonur, fyrrum eiganda strippstaðar og fleiri vafasama karaktera. Það stendur aftan á bókinni að hún sé “.. hröð og viðburðarík borgarsaga..” og það er hún vissulega. Sagan rúllar áfram, flæðið er gott og áður en maður veit af er bókin búin. En þrátt fyrir það fannst mér Tál ekki ná alveg sömu hæðum og fyrri bækur Arnaldar um Konráð. Ég hafði gaman af lestrinum en það vantaði samt eitthvað, það vantaði meira krydd og spennu. Mögulega má rekja það til stóru breytingarinnar nú að það vantaði hliðarmálið sem hefur fylgt Konráði alla tíð þar eð hin endalausa rannsókn hans á morði föður síns. Þeirri rannsókn er nú lokið en sú rannsókn setti svip sinn á fyrri bækurnar um hann. Það mál var auka krydd meðfram því aðalmáli sem Konráð var að rannsaka í það og það sinn. Það mál gaf Konráði dýpt, það gerði hann sjálfan dularfyllri og áhugaverðari en án þess var allt eitthvað svo flatt. Það er vissulega nokkurs konar hliðarmál í þessari sögu en það hvorki jafn dularfullt né jafn tilfinningaþrungið. Það er ekki eins, það vantar eitthvað. Það sem kom þó skemmtilega á óvart var húmorinn. Maður býst kannski ekki við persónum að rífa af sér brandarana í bók um morð, vændi og fíkniefni en hér og þar detta þó inn háðskar athugasemdir og lýsingar á atvikum sem fengu mig til að glotta út í annað. Þessar húmorspillur voru ferlega vel staðsettar og virkuðu mjög vel. Umfjöllunina í heild sinni má lesa hér. Fleiri ritdóma er að finna á Lestrarklefinn.is
Bókaútgáfa Menning Jól Mest lesið Stjörnulífið: „Bráðum fær hann að afmeyja mig“ Lífið Elegans og elskhugar í eftirpartýi hjá Laufeyju Tónlist Óvæntustu deilur ársins: „Ég hata ekki börn“ Tónlist Dorrit sprengir skvísuskalann á skíðum Tíska og hönnun „Kynslóðin sem ól okkur upp er meira og minna meðvirk” Lífið Geislandi gellur í þrumustuði á Edition Lífið Getur varla horft á sjálfan sig eftir eineltið Lífið ,,Þetta krem bjargaði húðinni á barninu okkar‘‘ Lífið samstarf „Eruð þið í alvörunni að handtaka Justin Timberlake?“ Lífið Fólk með kynlífsvanda fær ekki þá hjálp sem það þarf Lífið Fleiri fréttir „Ég vildi að ég hefði vitað af ykkur fyrr” ,,Þetta krem bjargaði húðinni á barninu okkar‘‘ Tannheilsa ungmenna veldur áhyggjum Góð tannhirða hefur bein áhrif á almenna heilsu líkamans Fermingarbörn virðast helst langa í raftæki og peninga Apple vörur eru fullkomin fermingargjöf Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Íslandsmeistaramót í spili alþýðunnar Ólsen ólsen Íslensk hönnun og vönduð efni skipta máli í upplifun gesta Þurrt hár og hvað er hægt að gera? Nýtt app frá Hreyfli komið í loftið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fasteignir á Spáni Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira