Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. desember 2025 00:09 Lögregla skyndilega aflýsti blaðamannafundi í dag. EPA Lögreglan í Bandaríkjunum hefur gefið út handtökuskipun á hendur einstaklingi grunaður um skotárás í Brown-háskólanum. Tveir létust í skotárásinni og níu særðust. Til rannsóknar er að skotárásin tengist öðru morði.
Á mánudag fór einstaklingur inn í Brown-háskóla, einn elsta og virtasta háskóla Bandaríkjanna, og skaut yfir fjörutíu sinnum úr skammbyssu. Ella Cook, annars árs nemi frá Alabama, og Mukhammad Aziz Umurzokov, úsbeskur-bandarískur fyrsta árs nemi, létu bæði lífið í árásinni. Einn var handtekinn á vettvangi en hann síðar látinn laus og greint frá að morðinginn gangi enn laus. Lögregla leitar nú að tilteknum einstaklingi en hefur ekki greint frá hvert nafn viðkomandi er. Einnig er leitað að bíl sem sá grunaði er talinn hafa tekið á leigu. Lögreglan skoðar tengsl skotárásarinnar í háskólanum þá við morðið á Nuno F Gomes Loureiro, 47 ára prófessor frá Portúgal, sem var skotinn til bana á heimili sínu á mánudag. Heimili hans er um áttatíu kílómetra frá háskólanum. Blaðamannafundi sem halda átti í dag var skyndilega aflýst en í staðinn tilkynnti lögreglan að hún hefði til rannsóknar tengsl skotárásarinnar við morðið á Nuno F Gomes Loureiro, 47 ára prófessors frá Portúgal. Hann var skotinn til bana á heimili sínu á mánudag, um áttatíu kílómetrum frá háskólanum samkvæmt BBC. Alríkisyfirvöld höfðu áður sagt að engin tengsl væru á milli morðanna. Á miðvikudag birtu lögregluyfirvöld ljósmynd af einstaklingi sem þau telja að hafi verið í nálægð við hinn grunaða. Þau óskuðu eftir því að viðkomandi myndi hafa samband við lögreglu. Almenningur hefur lýst yfir gremju yfir því að rannsókn skotárásarinnar hafi borið lítinn árangur. Alríkislögreglan hefur boðið fimmtíu þúsund dollara, tæpar 6,3 milljónir króna, í verðlaun fyrir upplýsingar sem leiði til þess að hinn grunaði verði handtekinn og sakfelldur.
Skotárásir í Bandaríkjunum Bandaríkin Mest lesið Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Innlent Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Innlent Ekið á hjólreiðamann Innlent Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Innlent Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Innlent Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi Innlent Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Erlent Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Innlent Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Erlent Fleiri fréttir Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Sjá meira