Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Jón Þór Stefánsson skrifar 27. desember 2025 22:23 Morðin eru kennd við skyndibitastaðinn Kentucky Fried Chicen. Lögregluyfirvöld í Texas-ríki Bandaríkjanna telja sig hafa fundið þriðja og síðasta árásarmann hinna svokölluðu Kentucky Fried Chicken-morða rúmlega fjörutíu árum eftir að þau voru framin.
Verknaðurinn sem um ræðir var framinn þann 23. september 1983, rétt fyrir lokun KFC-skyndibitastaðar í borginni Kilgore í Texas. Inni á staðnum voru fimm manns, þar af þrír starfsmenn staðarins. Árásarmennirnir, sem eru taldir hafa verið þrír talsins, frelsissviptu fimmenningana og myrtu með því að skjóta þá í hnakkann. Líkin fundust úti á túni skammt frá skyndibitastaðnum. Einu hinna látnu hafði jafnframt verið nauðgað. Sonur þingmanns grunaður Málið var óleyst í fjöldamörg ár þrátt fyrir að á þeim tíma hafi margir grunaðir verið handteknir. Um tíma var James Earl Mankins, sonur þáverandi fulltrúardeildarþingmannsins Jimmy Mankins, grunaður um verknaðinn og ákærður. Mankins var tengdur við málið vegna fingurnaglar sem fannst á einu líkinu, en lífsýnarannsókn leiddi í ljós að nöglin væri ekki hans. Fundu tvo tuttugu árum síðar og þann þriðja eftir fjörutíu Árið 2005 tengdi önnur lífsýnarannsókn á blóði tvo menn Darnell Hartsfield og Romeo Pinkerton við málið. Báðir voru sakfelldir fyrir verknaðinn. Og nú telur lögreglan í Texas sig hafa fundið þriðja morðingjann, Devan Riggs, með lífsýnarannsókn. Hann lést árið 2010.
Erlend sakamál Bandaríkin Mest lesið Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Beint streymi frá Gleðigöngunni Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Erlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Innlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Fleiri fréttir Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Sjá meira