Komu auga á strandaða ferðamenn við Heklu Agnar Már Másson skrifar 30. desember 2025 15:12 Jeppi ferðamannanna sést hér í gegnum sjónauka flugvélarinnar. Landhelgisgæslan Áhöfn um borð í björgunarflugvélinni Tf-Sif var fengin til þess að skima eftir ferðamönnum nálægt Heklu í gærkvöldi. Ferðamennirnir fundust fljótt þrátt fyrir mikið myrkur.
Landhelgisgæslan greindi frá því á Facebook í dag að áhöfn flugvélarinnar TF-Sif hefði sinnt hefðbundnu eftirlits- og æfingarflugi á hafsvæðinu fyrir norðan og vestan land. Vélin hafi síðan lent að því loknu á Akureyrarflugvelli. „Þegar hún var nýtekin á loft þaðan, á leið til Reykjavíkur, bárust upplýsingar um að leit væri að hefjast norður af Heklu vegna ferðamanna í jeppabifreið sem væru í vanda,“ skrifar gæslan. Ákveðið hafi verið að flugvélinni yrði flogið yfir svæðið til að koma auga á bílinn. Eftir stutta leit hafi áhöfnin á Tf-Sif fundið jeppann og blikkað lendingarljósum í átt að fólkinu, sem hafi getað blikkað til baka með ljósum bílsins. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar sendi þá björgunarsveitarfólki Landsbjargar nákvæma staðsetningu bílsins og komu björgunarsveitarmenn fólkinu til bjargar sem kom fólkinu til aðstoðar í kjölfarið. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi gæslunnar, segir að útkallið hafi borist á sjötta tímanum í gær. Það hafi tekið innan við þrjátíu mínútur að finna bílinn. Leitin hafi því gengið vel þrátt fyrir niðamyrkur.
Hekla Björgunarsveitir Landhelgisgæslan Rangárþing ytra Mest lesið Hófu frumkvæðisathugun í kjölfar umfjöllunar Kveiks Innlent Hinir treystu sér ekki en Íslendingarnir flugu Innlent Hundur fékk tafarlausa þjónustu en krabbameinssjúk kona beið mánuðum saman Innlent Fannst ellefu mínútum síðar með stunguvopn og blóðugar hendur Innlent Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Innlent Lést í sprengingunni Innlent Rannsaka meint brot gegn barni í leikskóla á Álftanesi Innlent Deila um menningarhús skekur Skagafjörð Innlent Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Innlent Hringveginum lokað, snjóflóð og flughálka Innlent Fleiri fréttir Hófu frumkvæðisathugun í kjölfar umfjöllunar Kveiks Fækkun aðgerða áfall fyrir marga endósjúklinga Tekist á um kjarasamningana Rannsaka meint brot gegn barni í leikskóla á Álftanesi Hundur fékk tafarlausa þjónustu en krabbameinssjúk kona beið mánuðum saman Hnífstunguárás í miðbænum, endómetríósa og hótanir Trumps Fannst ellefu mínútum síðar með stunguvopn og blóðugar hendur Deila um menningarhús skekur Skagafjörð Hringveginum lokað, snjóflóð og flughálka Nýsköpun, kjarasamningar og afnám áminningarskyldu Fáskrúðsfjarðargöngin opin á ný Hinir treystu sér ekki en Íslendingarnir flugu Handtekinn vegna stunguárásar í miðbænum Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Grunur um að íkveikja hafi valdið sinubruna Framboðslisti Vinstrisins í Reykjavík kynntur Boða lokanir á hringveginum vegna veðurs Einn handtekinn til viðbótar í tengslum við hópárásina Atvinnurekendur farnir að nota gervigreind til að sía umsóknarflóðið Lögregla metur ógn af erlendum áhrifum á ESB-atkvæðagreiðslu Guðrún um Þorgerði: „Yfirlæti hefur ekki reynst henni góður ráðgjafi“ Veittu ferðamönnum í vanda aðstoð við Héðinsfjarðargöng Rannsókn á banaslysinu í Fóðurblöndunni gæti tekið vikur og jafnvel mánuði Dapurlegt að fylgjast með hægriflokkum sem sameinast á jaðrinum Slysið í Fóðurblöndunni, möguleg afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslu og enn meira óveður Lokað fyrir umferð um Öxnadalsheiði Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Fríhöfnin gjörsamlega galtóm Sjá meira