Anderson henti Van Gerwen úr leik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. desember 2025 22:39 Gary Anderson hefur gert það gott á HM í pílukasti. getty/Steven Paston Gary Anderson, Gian van Veen og Luke Humphries tryggðu sér sæti í átta manna úrslitum á heimsmeistaramótinu í pílukasti í kvöld.
Mikil eftirvænting ríkti fyrir viðureign Andersons og Michaels van Gerwen. Þetta var í fyrsta sinn sem þeir mætast á HM síðan 2019. Anderson byrjaði betur og vann fyrstu tvö settin. Van Gerwen minnkaði muninn í 2-1 með því að vinna þriðja settið en Anderson vann næstu tvo og leikinn, 4-1. Hinn 55 ára Anderson hefur spilað vel á HM og er kominn í átta manna úrslit í fyrsta sinn í fjögur ár. Í átta manna úrslitunum á nýársdag mætir Anderson nýliðanum Justin Hood sem vann ellefta mann heimslistans, Josh Rock, fyrr í dag. Hinn 23 ára Van Veen, sem situr í 10. sæti heimslistans og er heimsmeistari ungmenna, vann 4-1 sigur á Charlie Manby sem hafði komið verulega á óvart á HM. Í lokaleik kvöldsins vann svo heimsmeistarinn frá 2024, Humphries, Kevin Doets, 4-1. Hollendingurinn vann fyrsta settið en það kveikti í þeim enska sem vann næstu fjögur og tryggði sér sæti í átta manna úrslitum þar sem hann mætir Van Veen. Humphries var með 103,07 í meðaltal gegn Doets og með frábæran 52 prósent árangur í útskotunum.
Pílukast Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Dagskráin í dag: Meistaradeildarveisla í allt kvöld Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga Sigurganga Hauka heldur áfram Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Áhugaverð ummæli Teits hafa hrist upp í hlutunum Verður líkamleg og andleg barátta Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Tímabilinu lokið hjá Viktori Sjá meira