Roberto Carlos sendur í hjartaaðgerð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. janúar 2026 11:00 Roberto Carlos birti þessa mynd af sér á sjúkrahúsinu og fullvissar alla um að það sé ekki ástæða til að hafa áhyggjur. @oficialrc3 Brasilíska knattspyrnugoðsögnin Roberto Carlos þurfti að eyða hluta jólahátíðarinnar á sjúkrahúsi en segir aðdáendum sínum að þeir þurfi ekki að hafa áhyggjur.
Þessi 52 ára gamli kappi þurfti að gangast undir hjartaaðgerð, að því er spænskir fjölmiðlar greina frá og hann sjálfur hefur nú staðfest. Hann segir þó að spænskir fjölmiðlar hafi málað að einhverju leyti skrattann á vegginn. Carlos var staddur í fríi í Brasilíu ásamt fjölskyldu sinni. Eftir að læknar fundu blóðtappa í fæti leiddi líkamsskoðun í ljós að hann væri með hjartavandamál og var hann því skorinn upp. Aðgerðin, sem áætlað var að tæki fjörutíu mínútur, tók allt að þrjár klukkustundir vegna smá vandamála að sögn spænska blaðsins AS. Roberto Carlos er nú undir nánu eftirliti og verður það næstu sólarhringa til að tryggja góðan bata. Fyrir fram ákveðið Roberto Carlos sjálfur notaði samfélagsmiðla til að segja frá því að aðgerðin hafi verið fyrir fram ákveðin og að engir fylgikvillar hafi komið upp meðan á henni stóð. View this post on Instagram A post shared by Roberto Carlos (@oficialrc3) „Ég gekkst undir fyrirbyggjandi læknisaðgerð sem var fyrir fram skipulögð með læknateyminu mínu. Aðgerðin heppnaðist vel og ég hef það gott. Ég fékk ekki hjartaáfall,“ skrifaði Roberto Carlos. „Bati minn gengur vel og ég hlakka til að ná fullri heilsu á ný og snúa aftur til starfa og persónulegra skuldbindinga innan tíðar. Ég þakka innilega öllum fyrir stuðningskveðjur, umhyggju og áhyggjur,“ skrifaði Roberto Carlos. Engin ástæða til að hafa áhyggjur „Ég vil fullvissa alla um að engin ástæða er til að hafa áhyggjur. Ég sendi læknateyminu öllu sem annaðist mig mínar innilegustu þakkir,“ skrifaði Roberto Carlos. Brasilíumaðurinn hefur spilað 125 landsleiki og unnið bæði gull og silfur á HM. Hann er talinn einn besti vinstri bakvörður sögunnar. Stærstum hluta ferils síns eyddi hann hjá Real Madrid þar sem hann spilaði 370 leiki á árunum 1996 til 2007. Hann lagði skóna á hilluna árið 2016 og er í dag sendiherra Real Madrid.
Spænski boltinn Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Fór grátandi af velli Sport Fleiri fréttir Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Sjá meira