Íslenskur maður lést í Úkraínu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 2. janúar 2026 21:04 Kjartan var 51 árs gamall. Facebook Íslenskur maður sem gekk í úkraínska herinn lést á víglínunni. Hann var 51 árs gamall og hafði verið í Úkraínu í tæpan mánuð. Bróðir hans staðfestir andlát hans.
Kjartan Sævar Óttarsson var 51 árs gamall þegar hann lagði af stað frá Svíþjóð þar sem hann var búsettur til Úkraínu í því skyni að ganga í herinn. Í byrjun nóvember birti hann færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann sagðist fara til Úkraínu og bað um fjárframlög til að borga fyrir sjúkra- og hergögn. Barmmerki Kjartans bera fána Íslands, Úkraínu og hinna Norðurlandanna.Facebook „Eins og allir eru kannski farnir að skilja er frelsi og réttlæti ekki ókeypis. Í dag þarf maður að berjast fyrir því og verja það sem okkur hefur þótt sjálfsagt nánast frá fæðingu. Þar sem ég treysti því að aðrar þjóðir muni hjálpa Íslandi og Svíþjóð ef ráðist verður á okkur með óréttmætum hætti, finnst mér siðferðislega rétt að gera slíkt hið sama fyrir önnur lönd eins og Úkraínu. Þess vegna, eftir um það bil 4 vikur, held ég til Úkraínu,“ skrifaði Kjartan áður en hann hélt út. Sjöunda desember flaug hann frá flugvellinum í Gautaborg til Krakár og ferðaðist þaðan með rútu til Lvív í vesturhluta Úkraínu. Síðan þá er ekki ljóst hvar Kjartan hefur verið eða í hvaða tilgangi en gera má ráð fyrir því að einhverjum dögum síðar hafi hann verið sendur á víglínuna, en ekki er vitað hvar nákvæmlega eða hvaða hlutverki hann sinnti þar. Kjartan Sævar í Kraká þaðan sem hann ferðaðist austur til Úkraínu.Facebook Hörður Harðarson bróðir Kjartans birti færslu á samfélagsmiðlum fyrr í dag þar sem hann kvaðst hafa fengið þau skilaboð frá Kjartani að ekki yrði hægt að ná í hann næstu tvær vikurnar. Þau skilaboð bárust honum, að hans sögn, þann tuttugasta desember. Í dag hafi maður sem kvaðst hafa barist við hlið Kjartans sagt fjölskyldu hans að hann væri látinn. Seinna í kvöld greindi hann svo frá því undir sömu færslu að honum hefði borist staðfesting á andláti bróður síns. Málið er á borði borgaraþjónustu utanríkisþjónustu sem segir ekki unnt að veita upplýsingar um einstök mál.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Íslendingar erlendis Mest lesið Banaslys á Hvolsvelli Innlent Íslenskur maður lést í Úkraínu Innlent Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Innlent Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Fleiri fréttir „Miður að bensínhákum sé umbunað“ Íslenskur maður lést í Úkraínu Nýársbarnið á Suðurlandi býr á Eyrarbakka Réttindalaus og keyrði á kyrrstæðan lögreglubíl Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Verðlækkanir á bensíni og áramótaheit landsmanna 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga Fjögur vilja tvö efstu hjá Viðreisn Kristín vill fyrsta sætið Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Þremur þjófum vísað úr landi Funda í janúar í kjaraviðræðum flugstétta Hlutfall fínasta svifryksins áberandi hátt á nýársnótt Telur nær öruggt að fleiri hundar muni týnast Dæmi um að fólk hafi flúið upp í sveit Þurfi að sannfæra flokkinn Sex tíma leikskóladvöl nú gjaldfrjáls í Hafnarfirði Neytendur eigi meira inni eftir eldsneytislækkanir á nýju ári Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Banaslys á Hvolsvelli Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Sjá meira