Fór 402 sinnum upp á Esjuna á einu ári Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. janúar 2026 07:32 Sigrún B. Magnúsdóttir fagnar því að hafa fjögur hundruð sinnum upp á Esjuna á einu ári. @sigrunbma Íslenskur fjallahlaupari náði mögnuðum árangri á síðasta ári en hún hefur undanfarið ár hvatt fólk til að koma á Esjuna en um leið farið fyrir öðrum með ótrúlegu magni af ferðum upp að Steini.
Sigrún B. Magnúsdóttir er 49 ára gömul og þekkir það betur en flestir að ganga upp á Esjuna. Hún gerði gott betur en það á árinu 2025 því Sigrún fór alls 402 sinnum upp á Esjuna á einu ári eða miklu meira en einu sinni á dag að meðaltali. Hljóp yfir 3200 kílómetra á árinu Hún toppaði kílómetrafjölda sinn og hæðarmetra á einu ári á árinu 2025 með því að hlaupa 3.204 kílómetra og 254.354 hæðarmetra. Hún hefur nú gert upp þetta magnaða afrek sitt á samfélagsmiðlum. „Það hafa nokkuð margir komið til mín og beðið um söguna á bakvið þessar 400 Esjur sem á endanum urðu 402 ferðir,“ skrifaði Sigrún í upphafi pistils síns. Sjá hversu langt ég kæmist „Þetta ferðalag var aldrei bara um tölur, markmið eða um dagana sem mig langaði ekki (sem gerðist aldrei), heldur snerist þetta um að styrkja hausinn og sjá hversu langt ég kæmist. Þannig að þetta snerist um dagana sem ég mætti, þrátt fyrir að nenna ekki, og um að halda áfram, jafnvel þegar ekkert virtist létt,“ skrifaði Sigrún View this post on Instagram A post shared by Sigrún 🎀 (@sigrunbma) „Það sem hefur kennt mér hvað mest í lífinu og sérstaklega í þessu verkefni eru öll ultra-hlaupin mín. Þau hafa kennt mér einn mikilvægan hlut í lífinu en það er að vera bara í núinu, að hugsa eingöngu um næsta skref, ekki næstu 10 km, ekki endalínuna heldur bara þetta eina skref, akkúrat núna. Og nákvæmlega þannig var þetta með Esjurnar árið 2025,“ skrifaði Sigrún Síðustu 35 Esjurnar voru þær erfiðustu „Ég kláraði þetta ekki með því að hugsa um 400 ferðir, heldur með því að taka eina Esju í einu, einn dag í einu og stundum bara eitt skref í einu,“ skrifaði Sigrún. „Síðustu 35 Esjurnar voru þær erfiðustu af öllum ferðunum. Enda kom aðalmarkmiðið í hús 9. desember og þá var maður pínu eins og sprungin blaðra, en ég var alls ekki að fara hætta þá eða að hætta í einhverri ljótri tölu,“ skrifaði Sigrún. Hausinn enn þreyttari „Líkaminn var oftar en ekki þreyttur og hausinn enn þreyttari. Það var þar sem allt sem ég hélt að ég „ætti til“ var löngu búið og ég þurfti að grafa enn dýpra. Þar var raunverulega prófið fyrir hausinn. Ekki hvort ég gæti mætt á Esjuna, heldur hvort ég gæti haldið áfram og það sannaði sig enn og aftur að hausinn minn er sterkur,“ skrifaði Sigrún. „Ég er ekki enn komin með Esjumarkmið fyrir þetta ár, en meðan veðrið er gott og nennan til staðar er ég mættust á Esjuna,“ skrifaði Sigrún. Draumahlaupið „Næstu skref munu ráðast 22. janúar, þegar kemur í ljós hvort ég kemst inn í UTMB – draumahlaupið mitt. Þar mun allt skýrast og árið verður mótað eftir því,“ skrifaði Sigrún en þar er hún að tala um ofurhlaupið Ultra-Trail du Mont-Blanc í Frakklandi. UTMB-hlaupið var sett á laggirnar árið 2003 og er eitt goðsagnakenndasta og virtasta utanvegahlaup í heimi. Það er um 170 kílómetra langt með tíu þúsund metra heildarhækkun umhverfis Mont-Blanc og liggur um Ítalíu, Sviss og Frakkland. „Þangað til geri ég það sem þetta fjall hefur kennt mér best: að vera í núinu, að taka eitt skref í einu og að njóta augnabliksins,“ skrifaði Sigrún. View this post on Instagram A post shared by Sigrún 🎀 (@sigrunbma)
Hlaup Esjan Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Handbolti „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Fótbolti „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover UFC tapaði 3,7 milljörðum á bardagakvöldinu í Hvíta húsinu Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið Viktor Gísli framlengir við Barcelona FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjá meira