Rússar senda herskip til móts við olíuskip elt af Bandaríkjunum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 7. janúar 2026 07:12 Rússar eru sagðir hafa sent að minnsta kosti eitt herskip til móts við olíuflutningaskipið. Getty/Yander Zamora Stjórnvöld í Rússlandi eru sögð hafa sent að minnsta kosti eitt herskip til að mæta olíuflutningaskipi sem Bandaríkjamenn hafa veitt eftirför frá því að það freistaði þess að komast til hafnar í Venesúela.
Samkvæmt New York Times er flutningaskipið, áður kallað Bella 1 en nú skráð sem Marinera, statt á milli Íslands og Bretlands. Skipið hóf för sína í Íran og var á leið til þess að sækja olíu í Venesúela þegar það var stöðvað af bandarísku strandgæslunni þann 21. desember. Bandaríkjamenn hugðust leggja hald á skipið þar sem það sigldi ekki undir fána en áhöfnin neitaði að hleypa þeim um borð og hélt inn á Atlantshaf. Bandaríkjamenn eltu en áhöfnin er sögð hafa brugðist við eftirförinni með því að mála rússneskan fána á skipið. Þá var nafni skipsins breytt í gagnagrunnum í Rússlandi og rússnesk stjórnvöld fóru fram á að Bandaríkin létu af eftirförinni. Allt kom fyrir ekki og í gær birti rússneski miðillinn RT myndskeið af bát strandgæslunnar, sem virðist hafa verið tekið af áhöfn Marinera. Bandaríkin segja skipið tilheyra svokölluðum skuggaflota sem flytur olíu fyrir Rússland, Íran og Venesúela, í trássi við viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna og annarra ríkja.
Rússland Bandaríkin Venesúela Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira