Rúnar Ingi: „Kæfðu okkar stemningu og völtuðu yfir okkur“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 8. janúar 2026 22:43 Anton Brink Njarðvík skoraði einungis 59 stig er liðið tapaði gegn ÍR í kvöld, 84-59, í 13. umferð Bónus deild karla. Frammistaða liðsins var döpur og engin stig komu frá varamönnum. „
Þetta var slakasti leikur úr meistaraflokki Njarðvíkur á meðan ég hef verið þjálfari“, sagði Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, eftir tap liðsins í kvöld. Njarðvík tapaði naumlega fyrir Grindavík í síðustu umferð og taldi Rúnar það tap mögulega haft eitthver áhrif á liðið í kvöld. „Við vorum fannst mér vel undirbúnir og vorum vel gíraðir í gær á æfingu og í dag í klefanum. Þegar leikurinn byrjaði og harkan byrjaði á gólfinu fannst mér við sjá að leikurinn frá því á sunnudaginn sat vel í mínum mönnum.“ „Við erum að spila á fáum mönnum og okkar helstu hestar hafa þurft að hlaupa. Mjög fljótlega í öðrum leikhluta fóru lappir að þyngjast og skotin öll, þó þau væru galopin voru of stutt. Það voru þyngri skref til baka og með því náði ÍR að kæfa okkar stemningu og völtuðu bara yfir okkur.“ 0 stig frá varamannabekk Njarðvíkur Varamenn Njarðvíkur skoruðu ekkert stig af bekknum í kvöld sem er áhyggjuefni fyrir lið eins og Njarðvík sem er í botnbaráttu Bónus deildarinnar. „Mögulega þarf ég að finna betri leiðir til þess að rótera. Við þurfum að hafa meira sjálfstraust alltaf, ekki bara þegar byrjunarliðinu gengur vel. Ég þarf innspýtingu af bekknum líka og mér fannst smá flatleiki og hræðsla. Við tókum ekki opin skot þegar við vorum að fá opin skot til þess að koma með neista af bekknum. Þeir þurfa að koma inn með auka orku þó þeir hafi ekki sömu reynslu eða sömu sentimetra eða þyngd. Þeir þurfa að finna leiðir til þess að hafa áhrif á leikinn og gefa okkur eitthvað jákvætt en við fengum fátt jákvætt í dag.“ „Við skorum 59 stig og áttum mjög erfitt með að koma boltanum í netið og þá vinnur þú ekki körfuboltaleiki“, sagði Rúnar að lokum.
UMF Njarðvík Bónus-deild karla ÍR Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Skömmustulegir landsliðsmenn og Man. Utd vann fótboltaleik Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Guðmundsdætur verða áfram í KR Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn Geta unnið tíunda leikinn í röð í undankeppni EM „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu Bjóða upp á barna FanZone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Jake Paul lofar að hætta í hnefaleikum ef hann tapar fyrir Doumbe FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Dagskráin í dag: Meistaradeildarveisla í allt kvöld Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Sjá meira