Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. janúar 2026 10:11 Linta á hliðarlínunni hjá ÍBV. vísir/diego Þjálfaraleit Eyjamanna er á enda en serbneski knattspyrnuþjálfarinn Aleksandar Linta hefur skrifað undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild ÍBV og stýrir Eyjaliðinu í Bestu deild karla í sumar.
Eyjamenn staðfesta þjálfararáðninguna á miðlum sínum í dag. Þorlákur Árnason framlengdi við ÍBV síðasta haust en hætti síðan óvænt með liðið þegar einn leikmaður hans, fyrirliðinn Alex Freyr Hilmarsson, var ráðinn yfirmaður hans sem nýr framkvæmdastjóri knattspyrnudeildarinnar. Þjálfaraleit Eyjamanna hefur staðið yfir í nokkra mánuði en þeir hafa nú samið við gamlan Íslandsvin sem lék lengi hér á landi og hóf þjálfaraferil sinn líka á Íslandi. Linta, sem er fimmtugur, á langan leikmannaferil á Íslandi þar sem hann lék í öllum fjórum deildum landsins á sínum tíma sem leikmaður frá árinu 1997 til 2013. Flesta leikina lék hann í 1. deild en þá einnig þrjú tímabil í efstu deild með ÍA og Þór Akureyri. Fyrsta reynsla Linta af Íslandi var þegar hann gekk til liðs við Íslandsmeistara Skagamanna sumarið 1997 en þjálfari ÍA var þá landi hans Ivan Golac. Linta hóf þjálfaraferil sinn á Grundarfirði árið 2012 en hann var þjálfari þar í tvö ár. Hann var aðstoðarþjálfari hjá slóvenska félaginu NK Olimpija Ljubljana og einnig aðalþjálfari þar í stuttan tíma 2018 þar sem Olimpija komst örugglega áfram í undankeppni Evrópudeildarinnar. Leið Linta lá síðan til Kasakstan þar sem hann var aðstoðarþjálfari hjá fimmföldum landsmeisturum FC Irtysh Pavlodar, eftir það fékk hann starf sem aðalþjálfari hjá FK Radnicki 1923 en þar var hann frá 2020 til 2021. Árið 2021 tók hann við FK Vozdovac en nú yfirgefur hann starf í unglingaliðum hjá Rauðu stjörnunni til að taka við ÍBV.
Besta deild karla ÍBV Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira