Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Kjartan Kjartansson skrifar 14. janúar 2026 15:11 Landsbankinn frysti vörslureikning lögmanns Vélfags í byrjun janúar. Utanríkisráðuneytið , sem er nágranni Landsbankans,veitti undanþágu frá þvingunaraðgerðum í gær. Vísir/Vilhelm Utanríkisráðuneytið veitti Vélfagi heimild til þess að greiða starfsmönnum fyrirtækisins laun af frystum reikningi í gær. Landsbankinn frysti reikning lögmanns Vélfags eftir að fjármunir félagsins voru millifærðir á hann.
Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Vélfags, kvartaði undan því í byrjun vikunnar að Landsbankinn hefði fryst vörslureikning lögmannsstofu hans þegar fé fyrirtækisins var flutt á hann í byrjun janúar. Þess vegna hafi ekki verið hægt að greiða starfsmönnum laun fyrir desember. Utanríkisráðuneytið hefði ekki veitt undanþágu til þess að losa féð og aðeins sagst hafa málið til skoðunar þrátt fyrir að það hefði gefið grænt ljós á greiðslu launanna í desember. Undanþágan til að greiða launa og launatengd gjöld starfsmanna fyrir desember með frystum fjármunum Vélfags á vörslureikningnum var veitt í gær, að því er segir í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Vísis. Það var daginn eftir að grein Sigurðar þar sem hann lýsti atvikum birtist á Vísi. Þar kemur fram að Landsbankinn hafi fryst vörslureikninginn vegna fjármuna í eigu Vélfags sem voru lagðir inn á hann. Veitti ekki undanþágu vegna sölu á eignum Arion banki frysti fjármuni Vélfags í sumar vegna ætlaðra tengsla meirihlutaeiganda félagsins við rússneska aðila á þvingunarlista Evrópusambandsins. Vélfagi tókst hvorki að sannfæra bankann né utanríkisráðuneytið um að eigandinn væri ekki í reynd leppur fyrri eigenda sem eru á þvingunarlistanum. Þeim starfsmönnum félagsins sem eftir voru var sagt upp störfum í nóvember. Utanríkisráðuneytið veitti undanþágu til að greiða laun starfsmanna af frystum reikningi hjá Arion banka á Þorláksmessu. Í greininni sem Sigurður, lögmaður Vélfags, skrifaði á Vísi kom fram að launagreiðslan hafi verið fjármögnuð með sölu eigna í desember. Íslandsbanki hefði lagt söluandvirðið inn á vörslureikninginn. Í svari ráðuneytisins kemur fram að það hafi ekki veitt sérstaka undanþágu fyrir eignasölunni enda sæti þær ekki fyrstingu af hálfu þeirra fjármálastofnana sem hafa fryst fjármuni félagsins. Þvingunaraðgerðirnar sem Vélfag sætir eru vegna tilrauna rússneskra stjórnvalda til þess að grafa undan stöðugleika í Evrópu. Norebo JSC, fyrrverandi eigandi Vélfags, er talið tengt svonefndum skuggaflota Rússa sem þeir nota til skemmdarverka í Evrópu og til að komast fram hjá viðskiptaþvingunum. Ivan Kauffmann, núverandi meirihlutaeigandi Vélfags, er talinn tengjast Norebo. Hann keypti félagið örfáum dögum áður en Norebo var sett á þvingunarlistann. Hæstiréttur samþykkti í vikunni að taka upp mál Vélfags gegn íslenska ríkinu. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði ríkið af kröfu fyrirtækisisn um endurskoðun frystingarinnar.
Viðskiptaþvinganir gegn Vélfagi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Rússland Evrópusambandið Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira