Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Arion banki 15. janúar 2026 13:00 Við hjá Arion banka hlökkum til áframhaldandi góðs samstarfs við íslenska landsliðið. Nú er EM 2026 að hefjast og spenningurinn auðvitað mikill. Við hjá Arion banka höfum verið einn helsti bakhjarl karlalandsliðsins í handbolta frá árinu 2004, eða í heil tuttugu og tvö ár.
Það hefur verið þvílíkt ævintýri og mikið vatn runnið til sjávar á þessum tíma. Til að mynda komumst við í fyrsta skipti á verðlaunapall á stórmóti þegar Ísland lenti í öðru sæti á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008. Árið 2010 unnum við svo fyrsta úrslitaleikinn okkar á EM þegar við bárum sigurorð af Póllandi í viðureigninni um bronsið. Þarna náðust nýir áfangar í sögu íslenska handboltans sem glöddu þjóðina og sköpuðu miklar væntingar næstu árin. Ýmsar stjörnur hafa gert garðinn frægan á þessum tuttugu og tveimur árum. Í nýrri markaðsherferð Arion banka, sem hefur það meðal annars að markmiði að efla og viðhalda áhuga þjóðarinnar á handboltanum, ákváðum við að kalla til nokkra þjóðþekkta fyrrum landsliðsmenn og leiða þá saman við núverandi fulltrúa Íslands á vellinum. Útkomuna má sjá á þessum stórskemmtilegu ljósmyndum og í myndböndum þar sem hlýja, samheldni og væntumþykja leikmannanna gagnvart hver öðrum skín úr hverju auga. Þessir strákar hafa gengið í gegnum margt saman, bæði súrt og sætt. Fyrir litla þjóð eins og Ísland fylgir því einhver alveg sérstakur galdur að ná árangri í íþróttum á alþjóðasviðinu. Fáar þjóðir standa jafn þétt við bakið á landsliðinu sínu og við gerum. Sverre Andreas Jakobsson, gamli varnarjaxlinn og núverandi starfsmaður Arion, sagði að það hefði verið „heiður í hvert skipti að klæðast landsliðstreyjunni“. Okkur er sönn ánægja að hafa staðið þétt við bakið á kröftugum íþróttamönnum, sem hugsa með slíkum hætti, með áratugalöngum stuðningi okkar. Svo elskum við líka bara stemninguna á stórmótum í handbolta, þegar ættingjar og vinir koma saman fyrir framan sjónvarpsskjáinn til að styðja við bakið á strákunum okkar í æsispennandi rimmum gegn fremstu leikmönnum íþróttarinnar. Handbolti er íþrótt sem þjappar okkur saman og brúar um leið bilið á milli kynslóðanna. Við erum einnig þeirrar skoðunar að íþróttastarf sé afar mikilvægt umbótaafl í samfélaginu. Íþróttaiðkun kennir okkur að axla ábyrgð, trúa á stór markmið, leggja okkur hundrað prósent fram og eiga í góðum samskiptum við liðsfélaga. Við hjá Arion banka hlökkum til áframhaldandi góðs samstarfs við íslenska landsliðið. Áfram Ísland! Klippa: Gjöfult samstarf Arionbanka og íslenska karlalandsliðsins
Handbolti Mest lesið „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Fleiri fréttir „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Hvenær getur þú hætt að vinna? Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Sjá meira