Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 24. janúar 2026 22:36 Óeirðir hafa geisað á götum Minneapolis eftir að maðurinn var drepinn. EPA Skýrari mynd er að teiknast upp af af atburðarásinni þegar karlmaður var skotinn til bana af fulltrúum Innflytjenda- og tollaeftirlits Bandaríkjanna, ICE, í Minneapolis í dag. Þó er enn margt á huldu í tengslum við aðdraganda árásarinnar.
Brian O’Hara lögreglustjóri í Minneapolis sagði á blaðamannafundi fyrr í kvöld að hinn látni væri 37 ára gamall bandarískur ríkisborgari. Áður hafði fréttastofa AP sagt hann 51 árs. Sjá einnig: Annar maður skotinn til bana af ICE Héldu honum niðri og slógu O’Hara sagði takmarkaðar upplýsingar að fá um aðdraganda skotárásarinnar. Lögregla hefur veitt þær upplýsingar að maðurinn hafi verið skotinn eftir að hann vatt sér upp að alríkisfulltrúa vopnaður skammbyssu. Ekki var tilgreint hvort hann hafi miðað byssunni að þeim en á myndbandsupptökum af atvikinu virðast löggæslumennirnir einir vopnaðir byssum. Á upptökunum má sjá að minnsta kosti fimm starfsmenn ICE beita manninn táragasi, yfirbuga hann og halda honum niðri á jörðinni meðan þeir slá hann. Þá sést einn þeirra draga upp byssu og skjóta nokkur skot. Í heildina heyrast að minnsta kosti tíu skothvellir. Loks sjást starfsmennirnir bakka frá manninum, sem liggur hreyfingarlaus á jörðinni, en vinda sér aftur að honum og hefja endurlífgunartilraunir. Mótmælendur hrópa á mennina: „Hvað hafið þið gert?“ O’Hara sagði ICE-fulltrúann sem skaut manninn til bana hafa verið fyrrverandi landamæravörð. AP hefur eftir fjölskyldu hans að hinn látni sé Alex Jeffrey Pretti, 37 ára gamall hjúkrunarfræðingur sem starfaði á gjörgæsludeild. Honum er lýst sem áhugamanni um útivist sem hafði miklar áhyggjur af aðgerðum Trump-stjórnarinnar í Minneapolis. Alex Jeffrey Pretti, 37 ára bandarískur ríkisborgari var drepinn af fulltrúum ICE í dag.AP Pretti hafði tekið þátt í mótmælum í borginni eftir morð ICE á Renee Good, óbreyttum borgara í Minneapolis, fyrr í mánuðinum. Samkvæmt AP var Pretti með hreint sakavottorð og hafði aldrei komist í kast við lögin að undanskildum nokkrum hraðasektum. Óeirðir brutust út í borginni eftir að maðurinn var drepinn og átök hafa geisað milli borgara og starfsmanna ICE. Hundruð manna hafa safnast saman við morðvettvanginn og lögregla hefur handtekið nokkurn fjölda mótmælenda. Þjóðvarðalið Minnesota hefur verið kallað út til þess að aðstoða lögreglu meðan á óeirðunum stendur. Sex vikur eru síðan fulltrúar ICE tóku til starfa í Minnesota-fylki með það að markmiði að handtaka alla glæpamenn og ólöglega innflytjendur. Þann 7. janúar var hin 37 ára gamla Renee Good skotin til bana af fulltrúum ICE. Í framhaldinu hefur mikill fjöldi fólks mótmælt í Minnesota. Í gær voru tugir handteknir fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu meðan á mótmælunum stóð.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira