Dregur til baka ummæli sín um Gísla Þorgeir Aron Guðmundsson skrifar 26. janúar 2026 10:00 Það héldu Gísla Þorgeiri engin bönd gegn Svíum Vísir/Vilhelm Sérfræðingar Besta sætisins héldu vart vatni yfir frammistöðu Gísla Þorgeirs Kristjánssonar í átta marka sigri Íslands á Svíþjóð á EM í handbolta í gær. Menn tóku hatt sinn ofan, átu sokk, en umfram allt dáðust að Gísla Þorgeiri og því hvernig hann hefur tekið af skarið sem leiðtogi innan vallar.
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Rúnar Kárason, fyrrverandi landsliðsmenn fóru yfir stórbrotna frammistöðu Strákanna okkar, átta mark sigur, 35-27, staðreynd. Gísli Þorgeir var magnaður í þessum mikilvæga sigri Íslands í milliriðlum sem heldur voninni um sæti í undanúrslitum á lífi. Það hvernig hann stýrði leik íslenska liðsins vakti athygli en hann átti ellefu stoðsendingar en bjó alls til fimmtán færi fyrir liðsfélaga sína. Þá sótti hann fjögur víti og fiskaði þrjá Svía út af í tvær mínútur. Gísli sprengdi upp sænsku vörnina hvað eftir annað og á rosalega mikinn þátt í því að sóknarleikurinn gekk svona vel. „Þetta er náttúrulega stórkostleg tölfræði, alveg með ólíkindum og þú sérð hvernig þeir eru farnir að bregðast við honum,“ sagði Ásgeir Örn um Gísla Þorgeir í Besta sætinu. „Við erum að reyna skapa eitthvað eins og venjulega fyrir hann og sjáum Karlsbogard kominn út á fjórtán metrana því hann er svo hræddur við þessa árás sem er að koma á hann. Það skipti engu máli hvar hann var staddur, Gísli bara dró sig aðeins til hliðar og skildi hann eftir í reyknum, ítrekað. Mikið af þessum mörkum sem Viggó var til að mynda skora, eftir að Gísli var búinn að jarða einhvern þrist þarna og við fáum helvíti gott færi upp úr því. Gísli Þorgeir var algjör prímusmótor í sóknarleik okkar í þessum leik. Ég held ég hafi sagt það í hverjum einasta hlaðvarpsþætti hingað til að hann hefur ekki enn hitt þann varnarmann sem hann getur ekki fintað upp úr skónum.“ Sá besti maður á mann Er hann bestur í heimi í akkúrat þessu? „Ég sé engan annan sem er jafngóður og hann maður á mann nema kannski Gidsel. Ég var eitthvað að hnýta í Gísla í pallborðinu á Vísi um daginn, segjandi að hann væri ekki nógu góður að losa boltann. Ég ætla bara að taka það til baka núna því Gísli var að finta, negla honum í hornin og út um allt. Hann losaði stórkostlega í þessum leik.“ Rúnar tók undir orð Ásgeirs en Gísli hefur verið mjög góður á mótinu fyrir íslenska landsliðið. „Þetta er hans besta leikstjórnanda frammistaða hingað til. Gísli gerir okkur bara það kleift að menn eins og Ómar, Óðinn og Viggó eru að komast í frábær færi og vel gert einnig af þeirra hálfu að nýta sitt en ég tek hatt minn ofan fyrir Gísla.“ „Það er sama hvað bjátar á, sama hvað er verið að gera við okkur, Gísli Þorgeir er að stíga upp í þessu móti sem leiðtogi og segja „ég mun aldrei gefast upp og halda áfram að reyna koma okkur yfir þessar hindranir sem bíða okkar. Inn á vellinum er Gísli Þorgeir að taka ótrúlega mikið til sín sem leiðtogi liðsins. Það er frábært að sjá og gaman að sjá í rauntíma hvernig hann vex í því hlutverki.“ Hlusta má á Besta sætið í spilaranum hér fyrir ofan eða á streymisveitum í gegnum hlekkina hér fyrir neðan:
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Besta sætið Handbolti Tengdar fréttir Óvinur Íslands: „Aldrei stríða heilu landi“ Sænski handboltaþjálfarinn Andreas Stockenberg hefur átt í vök að verjast á samfélagsmiðlum eftir að hann hraunaði yfir íslenska landsliðið sem svo valtaði yfir það sænska á EM í gær. 26. janúar 2026 07:32 „Svo kemur Ómar Ingi og fer að spila eins og Viggó“ Viggó Kristjánsson var öðrum fremur maður leiksins í stórsigrinum á Svíum á EM í handbolta í gærkvöldi og með magnaðri innkomu hans kviknaði heldur betur á hægri vængnum hjá íslenska landsliðinu. Örvhentu leikmennirnir í Besta sætinu voru líka ánægðir með þessa innkomu Viggós og líka hvaða áhrif það hafði á Ómar Inga Magnússon. 26. janúar 2026 07:03 Sjáðu myndirnar: Svíarnir gjörsigraðir á einu besta kvöldi strákanna okkar Svíarnir voru á heimavelli og höfðu unnið alla leiki sína á Evrópumótinu til þessa en þeir áttu ekki möguleika á móti huguðu og hungruðu íslensku landsliði á EM í handbolta í gær. 26. janúar 2026 06:20 Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Haukur Þrastarson átti góða innkomu í íslensku vörnina í stórsigrinum á Svíum í kvöld og hann fékk líka mikið hrós frá sérfræðingunum í Besta sætinu. 25. janúar 2026 23:03 Skýrsla Vals: Vel nýttur veikindadagur Vá. Þetta var leikur í lagi. Það er eiginlega ótrúlegt að skrifa það en Ísland vann átta marka sigur á Svíum í kvöld. Það á þeirra heimavelli, og spilandi þeirra leik. 25. janúar 2026 22:30 „Erfitt að lýsa þessari stemningu sem við náðum upp í vörninni“ „Mér líður ábælavelbala“ svaraði landsliðsmaðurinn Elliði Snær Viðarsson skælbrosandi þegar hann var spurður út í tilfinningu sem fylgir því að vinna Svíþjóð. 25. janúar 2026 19:34 EM í dag: Flensuleikur Vals og stemningslausir Svíar Íslenska þjóðin leggst kát á koddann í kvöld eftir stórkostlegan leik strákanna okkar gegn Svíum á EM. 25. janúar 2026 21:22 Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Íslenska karlalandsliðið í handbolta gerði sér lítið fyrir og vann átta marka sigur á Svíþjóð, 35-27, í Malmö í milliriðli II á Evrópumótinu í kvöld. Frammistaða íslenska liðsins var ein sú besta sem það hefur sýnt á stórmóti. 25. janúar 2026 19:29 Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Einn fremsti handboltamaðurinn í sögu Svía var allt en ánægður með frammistöðu sænska landsliðsins í skellinum á móti strákunum okkar í kvöld. 25. janúar 2026 20:11 „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Ísland gjörsigraði Svíþjóð í Malmö Arena í kvöld og sænsku miðlarnir leituðu skýringa hjá leikmönnum sænska liðsins sem höfðu unnið fjóra fyrstu leiki sína á Evrópumótinu. 25. janúar 2026 19:40 „Íslenska geðveikin sem við tölum oft um, þetta var hún“ Viggó Kristjánsson var maður leiksins er Ísland vann frækinn átta marka sigur gegn Svíum á EM í handbolta í dag. 25. janúar 2026 19:34 „Allt sem vantaði í síðasta leik var til staðar í dag“ „Geggjuð orka, bæði í stúkunni og hjá okkur. Allt sem vantaði í síðasta leik fannst mér vera til staðar í dag“ sagði landsliðsmaðurinn Haukur Þrastarson eftir 27-35 sigur gegn Svíþjóð á EM í handbolta. 25. janúar 2026 19:13 Fram sótti sigur fyrir norðan og ÍR endaði langa taphrinu Fram sótti 21-20 sigur úr háspennuleik við KA/Þór á Akureyri og ÍR endaði taphrinu sína með öruggum sigri gegn Selfossi í 15. umferð Olís deildar kvenna. 25. janúar 2026 16:41 Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Handbolti Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið Körfubolti Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Enski boltinn „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Handbolti Ellefu ára strákur verður óvænt hluti af setningarhátíð Ólympíuleikanna Sport Sara var lengi lásskjámynd Eyglóar en nú er Eygló á símanum hjá Söru Sport Fleiri fréttir Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Sigvaldi sneri aftur eftir stutt stopp á EM Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Biluð flugvél en gestirnir flugu inn í úrslitavikuna Metáhorf á Íslandi og þriðjungur Dana sá sigurinn Bæði lið Hauka gætu unnið bikarinn HSÍ sammála sérfræðingum og vill semja við Snorra Strákarnir okkar spila næst æfingaleiki við Svíþjóð Markakóngur á fimmta stórmótinu í röð Goðsögn Króata var öskrandi og hoppandi í stúkunni á bronsleiknum „Algjör þvæla að fara að rugga því eitthvað“ Íslensk landsliðskona til nítjánfaldra Noregsmeistara „Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða 75 prósent tapleikja á síðustu tveimur stórmótum á móti Degi Sig Andrea snýr heim í Olís-deildina Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Biður Dag afsökunar Skýrsla Vals: Hafa það sem við höfum ekki EM í dag: Úti er ævintýri og truflun frá Tona „Ætla bara að vera stór og stoltur af þessu liði“ Sjá meira
Óvinur Íslands: „Aldrei stríða heilu landi“ Sænski handboltaþjálfarinn Andreas Stockenberg hefur átt í vök að verjast á samfélagsmiðlum eftir að hann hraunaði yfir íslenska landsliðið sem svo valtaði yfir það sænska á EM í gær. 26. janúar 2026 07:32
„Svo kemur Ómar Ingi og fer að spila eins og Viggó“ Viggó Kristjánsson var öðrum fremur maður leiksins í stórsigrinum á Svíum á EM í handbolta í gærkvöldi og með magnaðri innkomu hans kviknaði heldur betur á hægri vængnum hjá íslenska landsliðinu. Örvhentu leikmennirnir í Besta sætinu voru líka ánægðir með þessa innkomu Viggós og líka hvaða áhrif það hafði á Ómar Inga Magnússon. 26. janúar 2026 07:03
Sjáðu myndirnar: Svíarnir gjörsigraðir á einu besta kvöldi strákanna okkar Svíarnir voru á heimavelli og höfðu unnið alla leiki sína á Evrópumótinu til þessa en þeir áttu ekki möguleika á móti huguðu og hungruðu íslensku landsliði á EM í handbolta í gær. 26. janúar 2026 06:20
Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Haukur Þrastarson átti góða innkomu í íslensku vörnina í stórsigrinum á Svíum í kvöld og hann fékk líka mikið hrós frá sérfræðingunum í Besta sætinu. 25. janúar 2026 23:03
Skýrsla Vals: Vel nýttur veikindadagur Vá. Þetta var leikur í lagi. Það er eiginlega ótrúlegt að skrifa það en Ísland vann átta marka sigur á Svíum í kvöld. Það á þeirra heimavelli, og spilandi þeirra leik. 25. janúar 2026 22:30
„Erfitt að lýsa þessari stemningu sem við náðum upp í vörninni“ „Mér líður ábælavelbala“ svaraði landsliðsmaðurinn Elliði Snær Viðarsson skælbrosandi þegar hann var spurður út í tilfinningu sem fylgir því að vinna Svíþjóð. 25. janúar 2026 19:34
EM í dag: Flensuleikur Vals og stemningslausir Svíar Íslenska þjóðin leggst kát á koddann í kvöld eftir stórkostlegan leik strákanna okkar gegn Svíum á EM. 25. janúar 2026 21:22
Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Íslenska karlalandsliðið í handbolta gerði sér lítið fyrir og vann átta marka sigur á Svíþjóð, 35-27, í Malmö í milliriðli II á Evrópumótinu í kvöld. Frammistaða íslenska liðsins var ein sú besta sem það hefur sýnt á stórmóti. 25. janúar 2026 19:29
Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Einn fremsti handboltamaðurinn í sögu Svía var allt en ánægður með frammistöðu sænska landsliðsins í skellinum á móti strákunum okkar í kvöld. 25. janúar 2026 20:11
„Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Ísland gjörsigraði Svíþjóð í Malmö Arena í kvöld og sænsku miðlarnir leituðu skýringa hjá leikmönnum sænska liðsins sem höfðu unnið fjóra fyrstu leiki sína á Evrópumótinu. 25. janúar 2026 19:40
„Íslenska geðveikin sem við tölum oft um, þetta var hún“ Viggó Kristjánsson var maður leiksins er Ísland vann frækinn átta marka sigur gegn Svíum á EM í handbolta í dag. 25. janúar 2026 19:34
„Allt sem vantaði í síðasta leik var til staðar í dag“ „Geggjuð orka, bæði í stúkunni og hjá okkur. Allt sem vantaði í síðasta leik fannst mér vera til staðar í dag“ sagði landsliðsmaðurinn Haukur Þrastarson eftir 27-35 sigur gegn Svíþjóð á EM í handbolta. 25. janúar 2026 19:13
Fram sótti sigur fyrir norðan og ÍR endaði langa taphrinu Fram sótti 21-20 sigur úr háspennuleik við KA/Þór á Akureyri og ÍR endaði taphrinu sína með öruggum sigri gegn Selfossi í 15. umferð Olís deildar kvenna. 25. janúar 2026 16:41
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“