Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 27. janúar 2026 19:30 Andri Ómarsson, framkvæmdastjóri Glassriver. Vísir/Vilhelm Sena og Arion banki hafa bæst í eigendahóp framleiðslufyrirtækisins Glassriver. Framkvæmdastjóri segist ekki geta gefið upp hve stóran hluta hinir nýju eigendur eignast í fyrirtækinu en segist vongóður að með þessu verði rekstur fyrirtækisins tryggur og segir síðustu misseri hafa verið mikla rússíbanareið. Tilkynnt var um breytingar á eigendahópnum nú síðdegis. Þar kemur fram að Sena og Arion banki hafi bæst í eigendahópinn hjá fyrirtækinu sem um árabil hafi verið eitt það öflugasta á sviði framleiðslu sjónvarpsþátta á Íslandi. Glassriver hefur komið að mörgum stærstu og þekktustu sjónvarpsverkefnum síðustu ára á borð við Svörtu sanda, HeimaEy og Venjulegt fólk. Fram kemur í tilkynningunni að aðkoma Arion banka, sem hafi verið viðskiptabanki Glassriver um árabil, sé liður í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Samkvæmt heimildum Vísis hefur borið á töfum á launagreiðslum til starfsfólks að undanförnu vegna reksturs félagsins en samkvæmt ársreikningi nam eigið fé og skuldir Glassriver árið 2024 samtals um 1,7 milljarði króna. FRÉTTATILKYNNING Reykjavík 27.01.2026 Breytingar á eigendahópi Glassriver Sena og Arion banki hafa bæst í eigendahóp framleiðslufyrirtækisins Glassriver, en fyrirtækið hefur um árabil verið eitt það allra öflugasta á sviði framleiðslu sjónvarpsþáttaá Íslandi. Glassriver hefur komið að mörgum stærstu og þekktustu sjónvarpsverkefnum síðustu ára og má þar t.d. nefna Svörtu sanda, HeimaEy og Venjulegt fólk. Sena er leiðandi fyrirtæki á sviði viðburða og tónleika og hefur áratuga reynslu af stuðningi við listræn verkefni. Mikil samlegðaráhrif hljótast með þessu eignarhaldi og getur Sena með þekkingu sinni á verkefnastjórn, ferlum og fjárstýringu gefið starfsfólki Glassriver enn frekara rými til þróunar verkefna og listræns starfs. Aðkoma Arion banka, sem verið hefur viðskiptabanki Glassriver um árabil, er liður í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Verkefni næstu mánaða er endurskipulagning og áframhaldandi uppbygging á rekstri Glassriver með nýjum eigendum og spennandi verkefnum sem mörg eru þegar í farvatninu. Skipst á skin og skúrir Andri Ómarsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir í samtali við Vísi að skipst hafi á skini og skúrum í rekstrinum. „Þetta er mjög lifandi geiri þannig það hafa komið allskonar áskoranir í gegnum tíðina. Við horfum auðvitað bara til þess, sér í lagi með reynslu Senu og með því baklandi sem þar er og svo aðkomu Arion, sem hefur verið okkar viðskiptabanki til margra ára, að það verði stöðugra land undir fótum fyrir okkur og tækifæri til að takast á við það óstöðuga land sem kvikmyndagerð er. Þannig við horfum björtum augum til framtíðar.“ Hann segir verkefnið framundan vera að endurskipuleggja og halda áfram uppbyggingu á rekstri Glassriver með nýjum eigendum. Fyrirtækið sé með ótalmörg verkefni í framleiðslu og í undirbúningi. Hve stóran hlut í fyrirtækinu eignast þessir aðilar? „Það er ekkert sem ég get gefið upp á þessum tímapunkti.“ Hafa orðið tafir á greiðslum til starfsfólks? „Ég segi bara að almennt hefur gengið á ýmsu. Við erum umfangsmikið fyrirtæki, við erum í mörgum verkefnum á sama tíma og það leiðir af sér mikinn rússíbana, sem þessum geira hefur fylgt. Við höfum leitast við að ná stöðugum fótum undir reksturinn.“ Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira
Tilkynnt var um breytingar á eigendahópnum nú síðdegis. Þar kemur fram að Sena og Arion banki hafi bæst í eigendahópinn hjá fyrirtækinu sem um árabil hafi verið eitt það öflugasta á sviði framleiðslu sjónvarpsþátta á Íslandi. Glassriver hefur komið að mörgum stærstu og þekktustu sjónvarpsverkefnum síðustu ára á borð við Svörtu sanda, HeimaEy og Venjulegt fólk. Fram kemur í tilkynningunni að aðkoma Arion banka, sem hafi verið viðskiptabanki Glassriver um árabil, sé liður í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Samkvæmt heimildum Vísis hefur borið á töfum á launagreiðslum til starfsfólks að undanförnu vegna reksturs félagsins en samkvæmt ársreikningi nam eigið fé og skuldir Glassriver árið 2024 samtals um 1,7 milljarði króna. FRÉTTATILKYNNING Reykjavík 27.01.2026 Breytingar á eigendahópi Glassriver Sena og Arion banki hafa bæst í eigendahóp framleiðslufyrirtækisins Glassriver, en fyrirtækið hefur um árabil verið eitt það allra öflugasta á sviði framleiðslu sjónvarpsþáttaá Íslandi. Glassriver hefur komið að mörgum stærstu og þekktustu sjónvarpsverkefnum síðustu ára og má þar t.d. nefna Svörtu sanda, HeimaEy og Venjulegt fólk. Sena er leiðandi fyrirtæki á sviði viðburða og tónleika og hefur áratuga reynslu af stuðningi við listræn verkefni. Mikil samlegðaráhrif hljótast með þessu eignarhaldi og getur Sena með þekkingu sinni á verkefnastjórn, ferlum og fjárstýringu gefið starfsfólki Glassriver enn frekara rými til þróunar verkefna og listræns starfs. Aðkoma Arion banka, sem verið hefur viðskiptabanki Glassriver um árabil, er liður í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Verkefni næstu mánaða er endurskipulagning og áframhaldandi uppbygging á rekstri Glassriver með nýjum eigendum og spennandi verkefnum sem mörg eru þegar í farvatninu. Skipst á skin og skúrir Andri Ómarsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir í samtali við Vísi að skipst hafi á skini og skúrum í rekstrinum. „Þetta er mjög lifandi geiri þannig það hafa komið allskonar áskoranir í gegnum tíðina. Við horfum auðvitað bara til þess, sér í lagi með reynslu Senu og með því baklandi sem þar er og svo aðkomu Arion, sem hefur verið okkar viðskiptabanki til margra ára, að það verði stöðugra land undir fótum fyrir okkur og tækifæri til að takast á við það óstöðuga land sem kvikmyndagerð er. Þannig við horfum björtum augum til framtíðar.“ Hann segir verkefnið framundan vera að endurskipuleggja og halda áfram uppbyggingu á rekstri Glassriver með nýjum eigendum. Fyrirtækið sé með ótalmörg verkefni í framleiðslu og í undirbúningi. Hve stóran hlut í fyrirtækinu eignast þessir aðilar? „Það er ekkert sem ég get gefið upp á þessum tímapunkti.“ Hafa orðið tafir á greiðslum til starfsfólks? „Ég segi bara að almennt hefur gengið á ýmsu. Við erum umfangsmikið fyrirtæki, við erum í mörgum verkefnum á sama tíma og það leiðir af sér mikinn rússíbana, sem þessum geira hefur fylgt. Við höfum leitast við að ná stöðugum fótum undir reksturinn.“
FRÉTTATILKYNNING Reykjavík 27.01.2026 Breytingar á eigendahópi Glassriver Sena og Arion banki hafa bæst í eigendahóp framleiðslufyrirtækisins Glassriver, en fyrirtækið hefur um árabil verið eitt það allra öflugasta á sviði framleiðslu sjónvarpsþáttaá Íslandi. Glassriver hefur komið að mörgum stærstu og þekktustu sjónvarpsverkefnum síðustu ára og má þar t.d. nefna Svörtu sanda, HeimaEy og Venjulegt fólk. Sena er leiðandi fyrirtæki á sviði viðburða og tónleika og hefur áratuga reynslu af stuðningi við listræn verkefni. Mikil samlegðaráhrif hljótast með þessu eignarhaldi og getur Sena með þekkingu sinni á verkefnastjórn, ferlum og fjárstýringu gefið starfsfólki Glassriver enn frekara rými til þróunar verkefna og listræns starfs. Aðkoma Arion banka, sem verið hefur viðskiptabanki Glassriver um árabil, er liður í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Verkefni næstu mánaða er endurskipulagning og áframhaldandi uppbygging á rekstri Glassriver með nýjum eigendum og spennandi verkefnum sem mörg eru þegar í farvatninu.
Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira