Stúdentapólitík er pólitík Ármann Leifsson skrifar 29. janúar 2026 10:02 Á stúdentapólitík bara að vera eilíft tuð um bílastæðagjöld sem hefur engin víðtækari áhrif á samfélagið sem stúdentar tilheyra? Algeng klisja sem fólk heyrir um stúdentapólitík er að hún sé ekki og eigi ekki að vera tengd pólitík utan háskólans. Pælingin hljómar mjög vel en þegar betur er að gáð heldur hún engu vatni. Sé saga stúdentahreyfinga og hins akademíska samfélags skoðuð er augljóst að baráttan fyrir aðgengilegu háskólanámi og hagsmunum stúdenta sé hápólitísk. Stúdentar hafa þurft að berjast fyrir húsnæði fyrir stúdenta, betri náms- og kennsluaðstöðu, betra námslánakerfi og betri háskóla almennt. Rödd stúdenta skiptir líka máli þegar kemur að alþjóðamálum, umhverfismálum og öllu öðru sem snertir háskólasamfélagið í breiðu samhengi. Oft á tíðum eru stjórnvöld nefnilega treg til aðgerða, þá skiptir öflug pólitísk barátta stúdenta öllu máli. Hagsmunabarátta stúdenta er pólitík Í grunninn snýst hagsmunabarátta stúdenta um að krefjast betri kjara fyrir stúdenta, kjarabæturnar eru síðan stjórnvalda að framkvæma hvort sem það er háskólinn, sveitarfélög, ríkisstjórnin eða Alþingi. Dæmin eru endalaus, uppbygging Stúdentagarða og deiliskipulag háskólasvæðisins fer í gegnum borgaryfirvöld, breytingar á námslánakerfinu og skrásetningargjaldinu fara í gegnum Alþingi sem ákveður líka á hverju einasta ári fjármögnun háskólans. Félagsstofnun Stúdenta varð bókstaflega til með lögum frá Alþingi. Pælið í því, Stúdentakjallarinn er rekinn af stofnun sem varð til með lögum frá Alþingi en samt er því haldið fram að stúdentapólitík sé ótengd landspólitík. Stúdentapólitík í samhengi Baráttumál Röskvu hafa öll breiðari skírskotun en bara innan háskólans, baráttan fyrir samgöngukorti stúdenta er baráttan fyrir umhverfisvænni og ódýrara samfélagi og baráttan fyrir hækkun grunnframfærslurnar og námsstyrkjakerfi í stað námslánakerfis er barátta fyrir jöfnu aðgengi að námi sem er mikilvægt vopn gegn efnahagslegum ójöfnuði. Meira segja litlir hlutir eins og tillaga Röskvu um uppbyggingu ungbarnahreiðra á háskólasvæðinu eru barátta í þágu jafnréttismála, ungir foreldrar eiga nefnilega líka að geta menntað sig. Háskólinn er ekki eyland, hlutleysi er afstaða Almennt er talið að eitt af því sem skilur Röskvu og hina fylkinguna að í Stúdentaráði sé sú að Röskva tekur afstöðu í utanskólamálum og þá sérstaklega alþjóðamálum. Í fyrsta lagi hefur fylking núverandi meirihluta sögulega flakkað á milli þess að taka afstöðu í alþjóðamálum frá máli til máls. Í öðru lagi hafa alþjóðamál gjarnan bein áhrif á stúdenta t.d. þegar bandarísk stjórnvöld banna ákveðnum háskólum að taka við alþjóðanemum, því er ekki bara um utanskólamál að ræða. Í þriðja lagi þá er það afstaða til alþjóðamála að fella tillögu um stuðning við akademíska sniðgöngu gagnvart Ísrael vegna þess að þú vilt ekki taka afstöðu. Í hlutleysi er ávallt hagur einhvers falinn. Í skjóli hlutleysis hefur Stúdentaráð núverandi meirihluta ekki tjáð sig um mennta- og þjóðarmorð á Gaza né í öðrum málum sem snerta hið alþjóðlega háskólasamfélag. Ef Stúdentaráð tekur ekki afstöðu um hvort háskólinn eigi að versla við Rapyd þá skapast enginn þrýstingur um aðgerðir og sniðgöngu, að skila auðu er því ákvörðun sem hefur áhrif, í þessu tilfelli slæm. Þetta er ekki flókið Í raun er ég að kafa of djúpt í hlutina hér, þú þarft einfaldlega ekki að hafa meira en augu og eyru til að átta þig að háskólinn er hluti af samfélagi, þar með hefur samfélagið áhrif á háskólann og öfugt. Jafnt aðgengi til náms og góð lífskjör stúdenta eru nefnilega ekki sjálfsögð, það þurfti og þarf að berjast fyrir því. Röskva er óhrædd við að gera það vegna þess að við erum pólitísk. Höfundur er forseti Röskvu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Háskólar Hagsmunir stúdenta Mest lesið Halldór 19.09.2026 Halldór Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír. Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Skoðun Vefurinn kom á undan félaginu Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Macklemore, Robert Kraft og sniðganga fyrir Palestínu Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun „Við ætlum að læra af þessu“ – enn einu sinni! Davíð Bergmann skrifar Sjá meira
Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun