Orðaleppar og annað óþolandi Jón Pétur Zimsen skrifar 2. febrúar 2026 07:46 Daginn eftir þrítugsafmælið þitt hittirðu vinkonu þína sem fór yfir strikið að vanda, varð sér til skammar og endaði kvöldið illa. Hún segir síðar að hún hafi bara verið „létt“, þótt allir viti betur. Að geta ekki sagt hlutina eins og þeir eru er óþolandi þegar allir vita hver staðan er. Ríkisstjórnin lofaði að skattar yrðu ekki hækkaðir á venjulegt fólk en líklegast finna allir að það grynnkar í pyngjunni mánaðarlega. Það er lítilsvirðing við fólk að kalla skattahækkanir „leiðréttingu“, „aðhald á tekjuhlið“, „glufur“, „tiltekt“ eða „vannýtta tekjustofna“. Verðbólga hefur hækkað um tæpt prósentustig frá því að ríkisstjórnin tók við og það eykur þrýsting á Seðlabankann um vaxtahækkun. Hvert prósentustig í vaxtahækkun kostar heimilin tugi þúsunda mánaðarlega í aukna greiðslubyrði. Skv. Hagstofunni hefur atvinnuleysi svo gott sem tvöfaldast á þeim tíma sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur verið við völd. Og því miður stefnir allt í það að enn fleiri munu missa vinnuna á næstunni. Vinkonan og ríkisstjórnin eiga það sameiginlegt að viðurkenna ekki vandann. Vinkonan þarf að horfast í augu við stöðuna og Kristrún Frostadóttir þarf að viðurkenna að það er ekkert plan og engin sleggja, ef ekki á illa að fara. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Pétur Zimsen Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Daginn eftir þrítugsafmælið þitt hittirðu vinkonu þína sem fór yfir strikið að vanda, varð sér til skammar og endaði kvöldið illa. Hún segir síðar að hún hafi bara verið „létt“, þótt allir viti betur. Að geta ekki sagt hlutina eins og þeir eru er óþolandi þegar allir vita hver staðan er. Ríkisstjórnin lofaði að skattar yrðu ekki hækkaðir á venjulegt fólk en líklegast finna allir að það grynnkar í pyngjunni mánaðarlega. Það er lítilsvirðing við fólk að kalla skattahækkanir „leiðréttingu“, „aðhald á tekjuhlið“, „glufur“, „tiltekt“ eða „vannýtta tekjustofna“. Verðbólga hefur hækkað um tæpt prósentustig frá því að ríkisstjórnin tók við og það eykur þrýsting á Seðlabankann um vaxtahækkun. Hvert prósentustig í vaxtahækkun kostar heimilin tugi þúsunda mánaðarlega í aukna greiðslubyrði. Skv. Hagstofunni hefur atvinnuleysi svo gott sem tvöfaldast á þeim tíma sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur verið við völd. Og því miður stefnir allt í það að enn fleiri munu missa vinnuna á næstunni. Vinkonan og ríkisstjórnin eiga það sameiginlegt að viðurkenna ekki vandann. Vinkonan þarf að horfast í augu við stöðuna og Kristrún Frostadóttir þarf að viðurkenna að það er ekkert plan og engin sleggja, ef ekki á illa að fara. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar