Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 2. febrúar 2026 09:51 Þvílíkar bombur á Grammy hátíðinni Getty Stórstjörnur tónlistarheimsins komu saman í Los Angeles í gær í tilefni af Grammy verðlaununum. Samhliða þessari tónlistarverðlaunahátíð er kvöldið líka ákveðin tískusýning þar sem fólk fer gjarnan frumlegar og skemmtilegar leiðir í klæðaburði frá heitustu tískuhúsum heimsins.
Hér verður farið yfir nokkur skemmtileg og frumleg klæði frá kvöldinu. Túttukjóll Chappell Roan var hvað frumlegust í klæðaburði en hún var í einstökum kjól þar sem brjóstin voru út og klæðin tengdust við geirvörtulokkana hennar en á myndum að dæma virðist hún líka hafa sett smá efnisbút yfir geirvörturnar. Þessi djörfu og flottu klæði voru sérhönnuð á hana frá tískuhúsinu Mugler og hún var sömuleiðis með sjal yfir sig ef henni skyldi verða kalt. Chappell Roan alltaf svo mikill töffari. John Shearer/Getty Images for The Recording Academy View this post on Instagram A post shared by Vogue (@voguemagazine) Lady Gaga stælar Björk Tónlistardrottningin Lady Gaga virðist hafa fengið mikinn innblástur frá Björk okkar Guðmundsdóttur þegar hún steig á svið á hátíðinni í gær. Gaga rokkaði klæði frá tískuhúsinu McQueen frá árinu 2009 en Björk var einmitt ein af listagyðjum McQueen og áberandi í klæðum frá vini sínum Alexander McQueen sem féll frá árið 2010. View this post on Instagram A post shared by Paper Magazine (@papermagazine) Heidi Klum í nektarkjól Ofurfyrirsætan og stuðboltinn Heidi Klum rokkaði svokallaðan nektarkjól eða „nude dress“ í gær en kjóllinn er sérsaumaður á hana og úr smiðju þýska tískuhússins Marina Hermansera. Heidi Klum flott og flippuð. Brianna Bryson/WireImage Laufey sigurvegari í MiuMiu Laufey Lín súperstjarnan okkar Íslendinga var svo stórglæsileg í ljósfjólubláum kjól frá ítalska tískuhúsinu MiuMiu. Þvílíkur sigurvegari! Laufey Lín var tók á móti sínum öðrum Grammy-verðlaunum í þessum glæsilega MiuMiu kjól.AP/Chris Pizzello Sabrina sæta Sabrina Carpenter er æðisleg poppsöngkona, stemningsskvísa og býr yfir miklum þokka. Hún skein skært í sérsaumuðum galagellukjól frá hátískuhúsinu Valentino og heiðraði minningu Valentino sjálfs sem féll nýverið frá. View this post on Instagram A post shared by Paper Magazine (@papermagazine) Splunkuný stjarna Rokkarinn og rísandi stjarnan Sombr steig á svið í sérsaumuðum pallíettujakkafötum frá Valentino. Hann var tilnefndur sem besti nýi listamaðurinn og var ekkert eðlilega mikill skvísutöffari. View this post on Instagram A post shared by Paper Magazine (@papermagazine) Kendrick Lamar mætti á svæðið Rapparinn Kendrick Lamar var ótrúlega elegant í Chanel jakkafötum en hann er líka bara alltaf smart! View this post on Instagram A post shared by Vogue (@voguemagazine) Bleikt Louis þríeyki Tónlistarmennirnir Pharrell Williams, Pusha T og Malice rokkuðu bleik jakkaföt frá franska tískuhúsinu Louis Vuitton en Pharrell er einmitt listrænn stjórnandi herradeildarinnar þar. Algjörir töffarar. Bleikar bombur Malice, Pusha T og Pharrell Williams í Louis Vuitton. Christina House / Los Angeles Times via Getty Images Fröken frumlegust Rapparinn og tónlistarkonan Audrey Nuna rokkaði fáránlega flott og frumlegt fitt frá Thom Browne. Audrey Nuna algjör töffari í Thow Browne. John Shearer/Getty Images for The Recording Academy Í fanta formi Teyana Taylor ber undantekningalaust af á rauða dreglinum. Þvílíka bomban í Tom Ford kjól eftir hönnuðinn Haider Ackermann. Teyana Taylor er nettust. Gilbert Flores/Billboard via Getty Images
Grammy-verðlaunin Tíska og hönnun Hollywood Mest lesið Blómstrar á Ítalíu og venst skömmum innfæddra Lífið Sigfús Pétursson Álftagerðisbróðir látinn Lífið Sögur af sterkum mömmum: „Þetta eru konur sem ákveða að breyta eigin lífi“ Áskorun Oddvitaáskorunin: Hefði viljað verja meiri tíma í tónlistina Lífið „Maður hefur verið í feluleik að lifa tvöföldu lífi“ Lífið Innipúkar geti farið á „tryllt djamm“ í Austurbæjarbíói í annað sinn Lífið „Agaleysið er algjört“ Lífið Þessi sigruðu Met Gala Tíska og hönnun Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Menning Gráhærð og aldrei glæsilegri Lífið Fleiri fréttir Þessi sigruðu Met Gala Met Gala-bölvunin alræmda Hittu sjálfan Jacquemus í New York Gjörningar og gleði á HönnunarMars Myndaveisla: Sjóðheit tískusýning í Hörpu Innsýn í heim fatahönnuða framtíðarinnar Týndi strax 120 þúsund króna sokkum Varð að vera flottastur í eigin teiti „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Gabbana stígur til hliðar hjá Dolce & Gabbana Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Kröfuharður og með öll smáatriði á lás Sjá meira