Uppgjörið: Valur - Haukar 34-41 | Hafnfirðingar tylla sér á toppinn Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 5. febrúar 2026 18:47 Frá leik Vals fyrr á tímabilinu í Olís deildinni gegn Stjörnunni. Vísir/Anton Brink Haukar sigruðu Val í 16. umferð Olís deildar karla í N1 höllinni í kvöld. Grétar Ari Guðjónsson snéri aftur heim úr atvinnumennsku í vikunni og átti frábæran leik fyrir liðið í kvöld. Leikurinn byrjaði hægt en gestirnir úr Hafnarfirði náðu fljótlega tökum á leiknum og komust í þriggja marka forystu strax í byrjun leiks. Valsmenn náðu þó að jafna leikinn þegar Haukar misstu Skarphéðinn Ívar Einarsson útaf velli með tveggja mínútna brottvísun. Á þeim kafla skoruðu Valsmenn þrjú mörk í autt mark. Haukar létu það þó ekki slá sig út af laginu og unnu forystuna upp aftur, þrátt fyrir að vera þremur leikmönnum færri um stund þegar Haukar höfðu misst þrjá menn útaf með tveggja mínútna brottvísun. Haukar voru þó með öll völd á vellinum og leiddu leikinn með sjö mörkum þegar liðin gengu inn í hálfleikinn, 15-22. Haukar héldu dampi í síðari hálfleiknum og spiluðu frábærlega .Valsmenn náðu í raun aldrei að minnka forskotið af neinu viti og héldu Haukar áfram frábærri frammistöðu allt til leiksloka. Sjö marka sigur Hauka niðurstaðan og með honum tyllir liðið sér á topp Olís deildarinnar. Atvik leiksins Magnús Óli Magnússon lykilleikmaður Valsmanna, meiddist á 27. mínútu leiksins sem kom sér illa fyrir heimamenn sem áttu þegar undir högg að sækja. Stjörnur og skúrkar Skarphéðinn Ívar Einarsson fór á kostum fyrir Hauka og skoraði 11 mörk. Var sífellt ógnandi og lét nokkra þrumufleyga vaða í netið. Össur Haraldsson var einnig öflugur fyrir gestina og var með 7 mörk. Stemning og umgjörð Fínasta stemning í höllinni og ágætis mæting. Dómarar Sigurður Hjörtur Þrastarson og Svavar Ólafur Pétursson stóðu vaktina í kvöld. Bæði lið ósátt með eitthverja dóma en nokkuð jafnt dæmt á báða bóga. Olís-deild karla Valur Haukar Handbolti
Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“