HSÍ sammála sérfræðingum og vill semja við Snorra Sindri Sverrisson skrifar 3. febrúar 2026 20:11 Snorri Steinn Guðjónsson er talinn á hárréttri leið með íslenska landsliðið. vísir/Vilhelm Ríkur vilji er til þess innan Handknattleikssambands Íslands að Snorri Steinn Guðjónsson verði áfram þjálfari karlalandsliðsins í handbolta. Núgildandi samningur hans rennur út í sumar.
Snorri tók við landsliðinu í júní 2023 og samdi þá til þriggja ára. Hann hefur nú stýrt liðinu á þremur stórmótum og árangurinn farið stigvaxandi. Þó að liðið hafi misst af verðlaunum á nýafstöðnu Evrópumóti þá komst það í undanúrslit stórmóts, í fyrsta sinn frá árinu 2010, og virðast sérfræðingar á einu máli um að réttast sé að Snorri haldi áfram með liðið. Hið sama segir formaður HSÍ, Jón Halldórsson, í samtali við RÚV í dag: „Ég er rosalega ánægður með Snorra Stein, hann er á hárréttri leið með liðið. Það er mikill vilji hjá sambandinu að halda því samstarfi áfram,“ sagði Jón við RÚV. Ákveðið hafði verið að ræða framhaldið eftir Evrópumótið og segir Jón að það verði því gert nú á næstu vikum. Í hlaðvarpsþætti íþróttadeildar Sýnar, Besta sætinu, var rætt um samningsmál Snorra í síðasta þætti. „Mér fyndist það fáránlegt ef við ætlum að fara að breyta eitthvað til,“ sagði Rúnar Kárason og Einar Jónsson bætti við: „Ég myndi gefa honum samning fram yfir Ólympíuleikana 2028. En það er ekki nóg að henda bara í samning. Það þarf að gera kröfur, þarf að setja markmið og allt það. Við erum komin á þann stað að það er hægt að gera það. Að sjálfsögðu ætti hann að fá samning allavegana fram yfir Ólympíuleikana 2028, engin spurning. Þetta lið er á virkilega góðri leið og mér finnst þetta engin spurning.“ Ásgeir Örn Hallgrímsson bætti svo um betur í Sportpakkanum á Sýn og sagði um sinn gamla félaga í landsliðinu: „Mér finnst hann bara vera að ná tökum á liðinu núna og búinn að sýna árangur. Þá væri það algjör þvæla að fara að rugga því eitthvað og það á bara að drífa sig í að skrifa undir nýjan samning við hann.“ Næstu leikir Íslands verða vináttulandsleikir við Svíþjóð dagana 15.-21. mars, hér á Íslandi, en Ísland vann einmitt frábæran átta marka sigur gegn Svíþjóð á Evrópumótinu. Árangurinn á EM skilaði bæði Íslandi og Svíþjóð öruggu sæti á HM í Þýskalandi í janúar á næsta ári og taka þau því ekki þátt í umspili fyrir það mót.
Landslið karla í handbolta Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Geta unnið tíunda leikinn í röð í undankeppni EM „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Bjóða upp á barna FanZone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Sjá meira