Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Agnar Már Másson skrifar 5. febrúar 2026 22:43 Thorbjørn Jagland, var áður forsætisráðherra og leiðtogi norska Verkamannaflokksins, en gegndi svo stöðu formanns Nóbelsnefndarinnar 2009 auk þess sem hann var framkvæmdastjóri Evrópuráðsins. Vísir/AFP Thorbjørn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, er til rannsóknar hjá norsku efnahagslögreglunni vegna gruns um spillingu þar sem Epstein-skjölin hafa varpað nýju ljósi á samband hans við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein.
Efnahagsbrotadeild norsku lögreglunnar, Økokrim, greindi frá því í dag að böndin bærust að Jagland eftir að bandaríska dómsmálaráðuneytið svipti hulunni af þremur milljónum skjala er tengdust rannsókn á brotum Epsteins, en skjölin hafa varpað ljósi á tengsl barnaníðingsins við valdamikið fólk, þar á meðal téðann við Norðmann. Lögreglan rannsakar hvort Jagland hafi þegið gjafir, ferðir og lán í andstöðu við reglur á meðan hann var formaður Nóbelsnefndarinnar 2009 - 2015 og framkvæmdastjóri Evrópuráðsins 2009 - 2019, að því er fram kemur í frétt norska ríkisútvarpsins NRK. „Nóbelsstórlaxinn“ Norskir fjölmiðlar hafa logað síðustu daga eftir að nýju Epstein-skjölin ljóstruðu upp um tengsl þeirra Jaglands og Epsteins. Fjölskylda Jaglands hefði til að mynda heimsótt Epstein og hann átti sjálfur í samskiptum við bandaríska kynferðisbrotamanninn. Jagland, sem er fyrrverandi formaður norska Verkamannaflokksins, hefur enn ekki tjáð sig um rannsókn lögreglunnar en um helgina viðurkenndi hann að það hafi verið dómgreindarbrestur af sinni hálfu að eiga í samskiptum við Epstein. Aftur á móti sagði talsmaður Jaglands í síðustu að tilefni væri til þess að „rannsaka frekar hvort gögnin sem eru lögð fram séu ósvikin.“ Epstein-skjölin sýna að Jagland hafi skipulagt heimsókn til alræmdrar eyju, eyjunnar Epstein, í Karíbahafi með fjölskyldu sinni á meðan hann var formaður norsku Nóbelsnefndarinnar. Ekkert varð af heimsókninni eða fjölskylda Jagland dvaldi hins vegar í sumarhúsi Epstein á Pálmaströnd á Flórída. Epstein hlaut dóm fyrir kynferðisbrot á Flórída á seinni hluta fyrsta áratugar þessarar aldar. Jagland ræddi einnig í tölvupóstum um að koma Epstein í samband við Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, rétt fyrir fund Donalds Trump og Vladímírs Pútín í Helsinki árið 2018. Starfsmenn Epstein lýstu Jagland sem „Nóbelsstórlaxinum“. Vilja afnema friðhelgi yfir Jagland Anders Brosveet, lögmaður Jaglands, segir við VG að það sé í raun jákvætt að Økokrim reyni nú að komast til botns í því sem fjölmiðlar hafa dregið fram í dagsljósið og spurt út í síðustu tvo daga. „Þeir vinna sína vinnu og skýra úr þessu. Við munum leggja fram lykilgögn og skjöl til Økokrim um leið og kostur gefst,“ er haft eftir honum í frétt VG. Sem fyrrverandi framkvæmdastjóri Evrópuráðsins nýtur Jagland friðhelgi gegn saksókn, sem þýðir að ekki er hægt að rannsaka hann fyrir það sem hann gerði í starfi. Aftur á móti hefur Økokrim farið þess á leit við Evrópuráðið að þessi friðhelgi yfir Jagland verði afnumin, að því er NRK greinir frá. Meirihluti á norska þinginu vill að óháður aðili verði fenginn til þess að rannsaka utanríkisráðuneytið vegna málsins. Nóbelsnefndin sagði í yfirlýsingu að Jagland hefði betur mátt sleppa megni samskipta sinna við Epstein. Nefndin ætlaði þó að endurskoða verkferla sína. „Undirstrikar alvöru málsins“ „Upplýsingarnar sem komið hafa fram síðustu daga um samskipti Thorbjørns Jagland við Jeffrey Epstein hafa vakið fjölda nýrra spurninga sem þarf að svara,“ er haft eftir Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, í viðtali við NTB, samkvæmt NRK. „Að Økokrim hafi nú hafið rannsókn á Jagland vegna grófrar spillingar undirstrikar alvöru málsins.“
Mál Jeffrey Epstein Noregur Leiðtogafundur Evrópuráðsins í Reykjavík 2023 Nóbelsverðlaun Evrópusambandið Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu Innlent Fleiri fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Sjá meira