„Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 6. febrúar 2026 07:59 Gylfi Ólafsson er formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar. Aðsend Enn er óvíst hvort einhverjir þeirra flokka sem áttu aðild að Í-listanum í Ísafjarðarbæ muni bjóða fram sameiginlegan lista í komandi sveitarstjórnarkosningum eða hvort þeir bjóði fram í eigin nafni. Viðræðum um áframhaldandi samstarf var slitið í vikunni eftir að ekki náðist samstaða um uppstillingu á lista undir formerkjum Í-listans. Sitjandi oddviti listans segir kjarnann úr hópnum hafa áhuga á að halda áfram og sjálfur hyggst hann gefa kost á sér. Það eigi eftir að koma í ljós hvort það verði í nafni Viðreisnar eða annars sameiginlegs framboðs.
Í-listinn í Ísafjarðarbæ hefur verið í meirihluta á kjörtímabilinu en líkt og Vísir greindi frá í gær slitnaði upp úr viðræðum um áframhaldandi samstarf flokkanna undir formerkjum Í-listans. Það voru alls fjórir flokkar sem áttu aðild að Í-listanum á yfirstandandi kjörtímabili, Viðreisn, Samfylkingin, VG og Flokkur fólksins. Núna ætlum við í Viðreisn bara að melta þetta úr því að svona fór og ætlum að hittast og ráða ráðum okkar. En það yrði mögulega eitthvað sameiginlegt framboð eða við bjóðum fram sér. Það er fiðringur í okkur að halda áfram í bæjarmálunum, við erum dálítið sterkur kjarni sem vill halda með einum eða öðrum hætti,“ segir Gylfi Ólafsson, Viðreisnarmaður og sitjandi oddviti Í-listans og formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar. Það var formaður uppstillingarnefndar Í-listans sem greindi frá niðurstöðunni um að ekki yrði lengra komist í samningaviðræðum flokkanna á milli á Facebook-síðu listans í gærmorgun, eftir fund uppstillingarnefndar á miðvikudaginn. „Ég var ekki á þessum fundi, það var uppstillingarnefnd en af því að ég var að bjóða mig fram að þá sit ég ekki í uppstillingarnefndinni,“ segir Gylfi sem vildi annars lítið segja um hvernig línurnar liggja á milli flokkanna á þessu stigi. „En það gefur augaleið að það er flókið að koma saman framboði með fjóra flokka.“ Sjálfur ætlar hann að gefa kost á sér áfram, hvort sem það verður undir formerkjum Viðreisnar eða annars sameiginlegs framboðs sem væri samsett á annan hátt. Lítil hreyfing á sameiningarviðræðum Gylfi hefur tjáð sig og skrifað um möguleikana á frekari sameiningum sveitarfélaga á Vestfjörðum og fóru fram einhverjar óformlegar þreifingar í þá veru í fyrra. Hann segir þó ekki útlit fyrir að kosið verði um neinar frekari sameiningar milli Ísafjarðarbæjar og annarra sveitarfélaga á svæðinu í komandi kosningum. „Bolungarvík hafði engan áhuga á þessu og það hefur ekkert gerst í öðrum sameiningarmálum,“ segir Gylfi. Hann viti þó til þess að Árneshreppur og Kaldrananeshreppur hafi átt í samtali sín á milli um mögulega sameiningu sem hafi verið komið eitthvað lengra, og ekki er ýkja langt síðan að Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur sameinuðust.
Ísafjarðarbær Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Viðreisn Mest lesið Setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Verkfall flugvirkja hafið Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Fleiri fréttir Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Setja lög á verkfall flugvirkja Verkfall flugvirkja hafið „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Sjá meira