Er verið að kynna Borgarlínuna sem strætó? Bárður Sigurðsson skrifar 6. febrúar 2026 10:31 Um þessar mundir er fyrirhuguð Borgarlína mikið til umræðu. Gagnrýnendur verkefnisins skrifa hvern pistilinn á fætur öðrum og finna Borgarlínunni því til foráttu að vera allt of kostnaðarsöm og uppáþrengjandi fyrir of lítinn ávinning. Athyglisvert er hins vegar hversu sjaldan nokkur rök eru færð gegn grundvallarhugmyndinni sjálfri. Grundvallarhugmyndin glatast í umræðunni Af hverju er það svo? Jú, vegna þess að forsvarsmenn verkefnisins hafa sjaldnast sett þá grundvallarhugmynd skýrt fram þegar Borgarlínan er kynnt og rædd. Að segja fólki til dæmis að til standi að “auka hámörkun flutningsgetu fólks“ er ekki nóg til þess að koma hugmyndinni almennilega til skila til fólks sem aldrei hefur kynnst henni. Þegar slíkt orðalag er sett fram innan um tæknilegt skrifræðistungumál og almenn hugtök um umhverfismál, glatast kjarni málsins. Þetta er algengt í umfjöllun um samgöngumál, meðal annars í nýlegum pistli hér á Vísi. Borgarlínan er ekki strætó Borgarlínan á að vera hraðvagnakerfi, svokallað Bus Rapid Transit (BRT), sem er aðskilið frá annarri umferð þannig að farþegar hafi greiða og óhefta leið á áfangastað. Þessi aðskilnaður frá bílaumferð er grundvallarkonseptið sem greinir gott hraðvagnakerfi frá hefðbundnum strætó og gerir virkni þess í raun líkari lestarkerfi en almennum strætisvögnum. Allir sem hafa setið í bíl í umferðarteppu skilja auðveldlega hvaða þýðingu það myndi hafa ef þeir væru staddir í farartæki sem hefði óhefta og greiða leið framhjá umferðinni. Og allir sem hafa setið í strætó í umferðarteppu geta á sama hátt auðveldlega skilið hver munurinn er á strætó og vel heppnuðu hraðvagnakerfi. Samt hafa Betri samgöngur og aðrir málsvarar Borgarlínu leyft umræðunni að snúast nær alfarið um þá spurningu hvort við viljum eyða stórfé í “aðeins fínni strætó“, eins og engin ný grundvallarhugmynd sé yfirhöfuð til staðar sem vert er að ræða. Þegar opnuð er kynningarsíða fyrir Borgarlínuna á vef Betri samgangna (https://betrisamgongur.is/projects/borgarlina/) blasir við þessi mynd: Vagn sem stoppar við gangbraut eins og hver annar strætó og maður í venjulegu strætóskýli í forgrunni. Þetta er myndin sem almenningur er skilinn eftir með í huga sér þegar Borgarlínan er rædd. Nokkurnveginn strætó - en í öðrum lit. Við sem notum strætó þekkjum það vel hversu mikið vesen það getur verið. Hann er oft óáreiðanlegur á háannatímum, erfitt getur verið að treysta tengingum milli vagna og greiðslukerfið er alræmt klúður sem sífellt veldur töfum. Sá sem þekkir þetta mun augljóslega ekki hugsa með sér: "meira af þessu fyrir 100-200 milljarða, nema plássfrekara takk". Samt er þetta sú mynd sem forsvarsmenn Borgarlínu hafa, nær athugasemdalaust, leyft að greypast í hugum almennings þegar Borgarlínan er rædd. Spurningin sem raunverulega skiptir máli Þegar umferðarteppur eru fyrirsjáanlega vaxandi vandamál og almenningssamgöngur á Íslandi eru í reynd einskorðaðar við strætó, dugar ekki að spyrja einungis hvort “meiri almenningssamgöngur” séu góð lausn eða ekki. Spurningin sem raunverulega skiptir máli er hvort við viljum og þurfum almenningssamgöngur sem eru aðskildar frá bílaumferð, eða hvort við teljum raunhæft að halda áfram að bæta við akreinum fyrir sífellt fleiri bíla. Þangað til málsvarar Borgarlínu krefja gagnrýnendur sína um svör við þeirri spurningu og knýja þá til að færa rök gegn hinni eiginlegu hugmynd að baki Borgarlínunni, fremur en gegn fyrirferðameiri tegund af strætó, verður umræðan áfram villandi og Borgarlínuverkefninu sjálfu í óhag. Höfundur er notandi almenningssamgangna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Borgarlína Samgöngur Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar