Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Smári Jökull Jónsson skrifar 9. febrúar 2026 14:07 Plöntur í Grasagarðinum eru byrjaðar að þjófstarta vorinu. Vísir Hin milda veðrátta sunnan heiða hefur ýtt undir snemmbúinn vöxt gróðurs. Garðyrkjufræðingur segir þó plönturnar ekki láta plata sig svo glatt. Forsvarsmaður golfklúbbs vill mest af öllu fá snjó á völlinn.
Í grasagarðinum er flestallur gróður í vetrardvala en veðurfar síðustu vikur og mánuði hefur gert það að verkum að sumar plöntur eru farnar að láta á sér kræla og það fyrr en venjulega. Flestir fagna líklega snjóleysinu en snjórinn getur þó hjálpað til við að verja viðkvæman gróður. Tíðarfar í janúar var óvenjugott og var meðalhiti í Reykjavík tæpri einni gráðu hærri en meðaltal síðustu tíu ára þar á undan. „Sumar plöntur fara aðeins af stað, eins og toppar, mistill og sumir laukar upp við hús þar sem er mjög hlýtt við suðurvegg en ég hef engar áhyggjur eins og er,“ sagði Svanhildur Björk Sigfúsdóttir garðyrkjufræðingur í Grasagarðinum í Laugardal þegar fréttastofu Sýnar bar að garði í dag. Svanhildur Björk Sigfúsdóttir garyrkjufræðingur í Grasagarðinum í Laugardal.Vísir/Anton Brink „Ef þær eru komnar mjög langt af stað þá er gott að reyna að hlífa þeim en maður getur svo lítið gert,“ bætti Svanhildur við og sagði að fólk gæti sett grenigrein yfir viðkvæmar plöntur eða þar til gerða dúka. Rabbarbarinn lætur ekki plata sig Rabbarbarinn var byrjaður að kíkja upp úr jörðinni í Grasagarðinum en Svanhildur sagði hann harðan af sér og vel þola þó kólna fari í veðri. „Hann gerir þetta og margar fjölærar plöntur. Þær byrja aðeins að kíkja upp ef það kemur góð tíð eins og hefur verið undanfarið. En hann hægir bara á sér, lætur ekkert plata sig og fer ekkert af stað. Nema það komi einhver bongóblíða, það gæti gerst.“ Guðmundur Árni Gunnarsson er sviðstjóri vallarsviðs hjá GKG.Vísir/Anton Brink Sviðsstjóri vallarmála hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar segist engar skemmdir hafa séð á vellinum en afar lítil úrkoma var í janúarmánuði. „Það gladdi okkur mikið að fá rakann yfir þetta, þetta var orðið svolítið þurrt og skorpið í toppinn“ Vill fá snjó Sviptingar í veðri geti verið vandasamar og hafi skapað vandamál áður. „Það sem við höfum kannski lært af því er að vera öflugri að fara út að sanda og reyna að hlífa plöntunni í flötunum eins mikið og við getum til að halda í henni hita og verja hana fyrir þessum köldu norðanáttum sem oft koma á þessum árstíma“ „Hvert er óskaveðrið þitt svo næstu vikurnar?“ Ég væri alveg til í að fá smá snjóföl núna yfir völlinn og gefa honum smá slaka fram í upp úr næstu mánaðamótum“
Veður Golfvellir Tré Garðyrkja Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira