Körfubolti

Tryggvi var framlagshæstur þegar sigur­gangan hélt á­fram

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tryggvi Snær Hlinason átti mjög flottan leik á móti sínum gömlu félögum í kvöld.
Tryggvi Snær Hlinason átti mjög flottan leik á móti sínum gömlu félögum í kvöld. Getty/Borja B. Hojas

Surne Bilbao hélt sigurgöngu sinni áfram í spænsku körfuboltadeildinni í kvöld þegar liðið vann nauman sigur á útivelli á móti Casademont Zaragoza.

Bilbao vann leikinn með tveimur stigum, 84-82, eftir að hafa unnið seinni hálfleikinn með þremur stigum.

Íslenski landsliðsmiðvörðurinn Tryggvi Snær Hlinason átti góðan leik og var framlagshæstur í Bilbao-liðinu en hann var þarna að mæta sínum gömlu félögum.

Tryggvi endaði með 25 framlagsstig í leiknum. Hann skoraði 15 stig, tók 9 fráköst, gaf 3 stoðsendingar og varði eitt skot. Hann tróð boltanum þrisvar sinnum í körfuna í leiknum og varði 75 prósent skota sinna, bæði utan af velli (6 af 8) og af vítalínunni (3 af 4).

Þetta var sjötti deildarsigur Bilbao í röð og liðið er nú í áttunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×