Úkraínumenn á Íslandi minntust Kjartans Sævars Oddur Ævar Gunnarsson og Lovísa Arnardóttir skrifa 10. febrúar 2026 21:31 Fjölskylda Kjartans var viðstödd minningarstundina. Aðsend Úkraínumenn á Íslandi komu saman til minningarstundar í Maríukirkju á sunnudag um Kjartan Sævar Óttarsson sem lét lífið í innrásarstríði Rússa í Úkraínu. Fjölskylda Kjartans var viðstödd. „
Okkur í úkraínska samfélaginu þykir þetta afar sárt og því hófum við undirbúning að minningarstund honum til heiðurs. Fjölskyldu hans var boðið að vera viðstödd sunnudaginn 8. febrúar í Maríukirkju í Seljahverfi, þar sem úkraínska samfélagið hittist reglulega á sunnudögum til bæna, samveru og samtals, þar sem fólk deilir bæði sorg og gleði. Prestur okkar, séra Mykhajlo, heldur utan um þessar bænastundir og samverustundir,“ segir Oksana Shabatura, í tilkynningu um minningarstundina. Frá minningarstundinni. Aðsend Hún segir að þar hafi verið flutt þakkarorð, minningar, bænir og tónlist og fjölskyldu Kjartans færð blóm, kerti og kort sem tákni samúð þeirra og þakklæti. „Að loknum formlegum hluta minningarstundarinnar hittumst við í samkomuhúsi kirkjunnar, þar sem við kynntumst dóttur Kjartans og systkinum hans og áttum saman hlý og einlæg samtöl. Fulltrúar úkraínska samfélagsins fluttu fjölskyldunni samúðarkveðjur, þakkarorð og orð stuðnings,“ segir Oksana. Kjartan var 51 árs gamall þegar hann lagði af stað frá Svíþjóð, þar sem hann var búsettur, til Úkraínu í því skyni að ganga í herinn. Í byrjun nóvember birti hann færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann sagðist fara til Úkraínu og bað um fjárframlög til að borga fyrir sjúkra- og hergögn. Tilvitnun í Kjartan en þetta skrifaði hann á Facebook áður en hann hélt til Úkraínu. Aðsend „Eins og allir eru kannski farnir að skilja er frelsi og réttlæti ekki ókeypis. Í dag þarf maður að berjast fyrir því og verja það sem okkur hefur þótt sjálfsagt nánast frá fæðingu. Þar sem ég treysti því að aðrar þjóðir muni hjálpa Íslandi og Svíþjóð ef ráðist verður á okkur með óréttmætum hætti, finnst mér siðferðislega rétt að gera slíkt hið sama fyrir önnur lönd eins og Úkraínu. Þess vegna, eftir um það bil 4 vikur, held ég til Úkraínu,“ skrifaði Kjartan áður en hann hélt út.
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Fleiri fréttir Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Sjá meira