Verður Reykjavík grænasta borg Evrópu? Finnur Ricart Andrason skrifar 12. febrúar 2026 07:01 Reykjavík gæti orðið grænasta borgin í Evrópu ef við þorum að setja markið hátt. Það er margt gott að gerjast í umhverfismálum borgarinnar en við eigum svo sannarlega mikinn metnað inni. Náttúran er ekki sú eina sem myndi græða á róttækari umhverfisaðgerðum í borginni heldur myndu þær auka lífsgæði okkar allra. Við gætum verið með öflugustu almenningssamgöngurnar, öruggustu hjólastígana, skemmtilegustu almenningsgarðana, besta aðgengið að grænum svæðum, flestar friðlýstar náttúruperlur, minnstu loftmengunina, virkasta hringrásarhagkerfið, umhverfisvænustu húsin og heilsusamlegasta matinn í mötuneytum skóla og stofnana. Eftir að hafa starfað í umhverfismálum undanfarin ár hef ég fulla trú á að þetta geti allt saman ræst. Slíkar aðgerðir hafa margþættan ávinning. Aðgengi að grænum svæðum, minni loftmengun og umhverfisvænni matur bætir andlega og líkamlega heilsu. Betri almenningssamgöngur, hjólastígar og stuðningur við fjölbreytta ferðamáta veita fólki meira frelsi, stytta ferðatíma og kosta minna. Minni úrgangur og virkara hringrásarhagkerfi gerir daglegt líf fólks og rekstur borgarinnar ódýrari. Það gagnast okkur öllum og eykur jöfnuð að mála borgina græna. Þetta er hægt ef við þorum, ef við trúum nógu mikið á þessa framtíðarsýn og ef við höfum metnaðinn fyrir því að setja fjármagn í að hrinda henni í framkvæmd. Þetta er framtíðarsýn sem mig langar að gera að veruleika, ekki bara umhverfisins vegna, heldur vegna þess að græn borg eykur lífsgæði fólksins sem býr í henni. Græn borg þýðir betri borg og þess vegna legg ég til eftirfarandi aðgerðir. 1. Verndum og endurheimtum vistkerfi Endurheimtum allt votlendi sem er ekki í nýtingu og endurheimtum birkiskóga á völdum svæðum á Esjunni. Friðlýsum Skerjafjörð, gerum Esjuna að fólkvangi og búum til útivistaráætlun fyrir Úlfarsfell. Stöndum vörð um núverandi vaxtamörk og einbeitum okkur að mannvænni þéttingu sem forgangsraðar grænum svæðum, gróðri, ljós- og hljóðvist. Sleppum grasslætti á umferðareyjum og öðrum vel völdum svæðum. Forgangsröðum Sæbrautarstokki og Miklubrautargöngum og setjum Sundabraut á ís. 2. Tryggjum öflugri almenningssamgöngur Bætum leiðakerfi, aukum tíðni og fjölgum sérakreinum fyrir Strætó strax. Frítt í strætó fyrir ungt fólk, námsmenn og eldri borgara. Flýtum uppbyggingu Borgarlínu. Lest milli Reykjavíkur og Keflavíkur fyrir árið 2035. 3. Aukum öryggi og bætum þjónustu fyrir gangandi og hjólandi Leggjum fleiri, þéttari og samtengdari hjólastíga. Málum hjólastígana rauða, skiljum þá betur frá bílaumferð og bætum lýsingu til að auka öryggi. Fjölgum undirgöngum, göngubrúm og göngugötum. Bætum vetrarþjónustu fyrir gangandi og hjólandi til að auka öryggi og draga úr umferð. 4. Búum til græna skipulagsáætlun Forgangsröðum vellíðan íbúa umfram stærðarhagkvæmni í íbúðauppbyggingu. Setjum skýrar kröfur fyrir verktaka um ljósvist, hljóðvist og gróður innan lóðamarka og aðgengi að grænum svæðum. Veitum afslátt af gjöldum fyrir umhverfisvottaðar byggingar. Hrindum nýrri Borgarhönnunarstefnu í framkvæmd með öflugri aðgerðaáætlun og í samráði við umhverfissálfræðinga. 5. Minna rusl, meiri hringrás Færum okkur úr sorptunnum yfir í djúpgáma til að bæta þjónustu og spara pening. Nýtum snjallausnir til að skapa hvata til að draga úr úrgangi - þau sem henda minna ættu að borga minna. Fjölgum hringrásarsöfnum í borginni í samstarfi við Circular Library Network til að auðvelda fólki að fá verkfæri, raftæki o.fl. að láni í sínu nærumhverfi. Ýtum undir hringrásarhagkerfið með afsláttum af gjöldum fyrir fyrirtæki sem bjóða upp á deili- og viðgerðaþjónustu. Við þurfum að þora að hugsa stórt, leyfa okkur að dreyma og byggja grænni og betri borg, fyrir fólkið, framtíðina og umhverfið. Höfundur sækist eftir 1. sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Finnur Ricart Andrason Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar