Ein eða tvær akreinar, þar liggur efinn Samúel Torfi Pétursson skrifar 12. febrúar 2026 08:04 Sjaldan hafa sex metrar af malbiki fengið jafn mikla athygli og nú, en það er u.þ.b. breiddin sem tvær akreinar á Suðurlandsbraut taka. Í nýrri deiliskipulagstillögu fyrir götuna er lagt til að klippa tvær af fjórum akreinum fyrir almenna bílaumferð í burtu til að rýma fyrir m.a. Borgarlínu: sérrými fyrir hágæða almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Borgarlínan er mikilvægt og þarft verkefni bundið Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Borgarlína eftir Suðurlandsbraut er hluti af svokallaðri fyrstu lotu sem mun liggja úr Hamraborg, um miðborg Reykjavíkur og austur á Ártúnshöfða. M.a. er hafin er vinna við byggingu Fossvogsbrúar, mikilvægum hlekk fyrstu lotunnar og búið er að samþykkja deiliskipulag fyrir suma áfanga fyrstu lotu Borgarlínu. En nú liggur fyrir einn snúnasti leggurinn í umræddu leiðarkerfi Borgarlínunnar en það er Borgarlína eftir Suðurlandsbraut, frá Kringlumýrarbraut að Skeiðarvogi. Deiliskipulagstillagan fyrir þennan legg liggur nú í skipulagsgátt til umsagnar. Verkefnið er snúið, því Suðurlandsbrautin, frá Kringlumýrarbraut að Skeiðarvogi, er ein af lykil-umferðaræðunum í borginni. Ein umferðarmesta gatan í borginni, sem ekki er stofnvegur í eigu Vegagerðarinnar, líkt og Miklabraut til dæmis. Á hverjum degi aka um um götuna 22-24 þúsund bílar, sem er álíka og á Hringbraut vestan Hofsvallagötu og tæpur helmingur af Miklubraut milli Grensásvegar og Háaleitisbrautar. Þetta er því sá götukafli sem ber langmesta umferð af öllum þeim götum sem ráðgert er að Borgarlínan aki um, alla vega í fyrstu lotu. Allt frá því frumdrög 1. lotu Borgarlínu voru kynnt 2021 hefur stefnan verið að þar sem Borgarlínan blandast bílaumferð sé legan höfð miðlæg og ekki fleiri en ein akrein fyrir bílaumferð sitt hvoru megin. Fyrir því eru mjög góð rök, s.s. til að aðstæður gangandi séu sem bestar og að göturými verði ekki of frekt á pláss. Og ein akrein í hvora átt fyrir almenna umferð gengur vel upp víðast hvar, enda umferðarmagnið á öðrum leggjum ekki mjög hátt. Á Nauthólsvegi sem dæmi. Á Suðurlandsbraut er umferðarmagnið hins vegar mun meira. Stefnan er samt skýr, ein akrein í hvora átt skal vera hámark. Hér verður ekki gerð tilraun til að svara því hvort Suðurlandsbrautin beri það að akreinum verði fækkað jafn eindregið og í deiliskipulagstillögunni. En á götu með um og yfir 20 þúsund bílum á sólarhring, með mörgum ljósagatnamótum sem rjúfa flæðið reglulega, er almennt talið að tvær akreinar í hvora átt séu ekkert sérstakt óhóf. En hugsanlega ákveðinn lúxus líka. Það sem skiptir miklu máli líka er hverjar aðstæður eru í sitt hvorum enda slíkrar götu, hvort þar taki við flöskuhálsar. Margt bendir til að það sé raunin á Suðurlandsbraut, en orsakir biðraða síðdegis er líklega mest að finna austast í götunni, þar sem hringtorg og tenging við Miklubraut eru mjög löstuð. Þar skiptir fjöldi akreina á Suðurlandsbraut sjálfri e.t.v. ekki höfuðmáli. Það er samt áleitin spurning hvort það sé eðlilegur og hófstilltur aðdragandi að verkefni eins og þessu að ákveða fyrirfram jafn eindregið að draga úr afkastagetu á götu eins og Suðurlandsbraut, sem telst kerfislega mikilvæg. Hún mun áfram verða mikil umferðargata, jafnvel þótt hlutdeild almenningssamgangna hafi náð tilsettu marki og Miklabraut hefur verið lögð í jarðgöng eða stokk (og meiri umferð leitar þangað) 2040. Þá bendir umferðarlíkan til að umferðin verði ríflega 17 þúsund bílar á sólarhring. Samt alveg ágætlega í lagt. Og af því búið er að taka ákvörðunina fyrirfram liggur ekkert fyrir um hvað þetta þýðir varðandi aukinn tafatíma og biðraðamyndun frá því sem nú er. Óvissa sem þessi er aldrei góð þegar miklir hagsmunir eru undir. Hún kyndir undir átök. Og það er því dálítið óheppilegt að svo virðist sem frekari greiningarvinna (umferðarhermanir með sviðsmyndum m.a.) verði látin bíða betri tíma – sem undanfara verkhönnunar götunnar líklega. Slík vinna getur svarað mikilvægum spurningum. Reykjavíkurborg hefur áður gert miklar kröfur um ítarlega forvinnu við gerð deiliskipulagsáætlana, einkum einkaaðila, til að skera úr um óvissu sem hafa áhrif á rýmisþörf. Það væri ekkert óeðlilegt að gera slíkar kröfur hér. Og hugsanlega ætti slík vinna að byggja á aðeins meira frelsi til handa þeim sérfræðingum sem vinna með verkefnið. T.d. að ekki sé útilokað að heimila tvær akreinar í báðar áttir þar sem þörfin gæti verið mikil, t.d. í gegnum stutta kafla með ljósastýrðum gatnamótum. Það væri ekkert brot á neinum lögmálum: Í Kaupmannahöfn var verið að leggja lokahönd á miðlæga Borgarlínu – léttlest – á Hringvegi 3 (Ringvej 3) sem umlykur vesturhluta borgarinnar. Hönnunarforsenda þar var að varðveita afkastagetu bílaumferðar, enda kerfislega mikilvæg gata í Kaupmannahöfn. Þar var ráðist í mjög umfangsmiklar hermanir á umferð til að ganga úr skugga um að það tækist. Umferðin á Hringvegi 3 er um margt sambærileg við Suðurlandsbrautina og liggur m.a. í gegnum borgarhverfi. Og verður með tveimur akreinum í báðar áttir. Það þarf kreatífa hugsun að líta á götuna í dag sem einhverja hraðbraut – enda hraði skiltaður lágt og breiddum akreina haldið í ítrasta lágmarki. Ekki er að sjá annað en mikla ánægju með verkefnið eftir opnun. Heilt yfir er söknuður að ítarlegri grunnvinnu með rýmri forsendum í þessu verkefni. Það er hægt að færa rök fyrir því að deiliskipulagstillaga, með föstum landfræðilegum skorðum, sé ekki tímabært skref. Vissulega má gera breytingar síðar, komi í ljós verulegar áskoranir sem ekki eru leystar öðruvísi en með deiliskipulagsbreytingu. En það virkar ekki eins og besta mögulega aðflugið í þessu verkefni. Og eins hefði verið gaman að sjá virkari þátttöku fasteignaeigenda meðfram Suðurlandsbraut sem byggð væri á sameiginlegum skilningi. Ef gatan á að verða skemmtileg breiðgata væri upplagt að reisa breiða aðlaðandi gangstétt þétt við verslunarglugga þeirra húsa sem þar eru og blandaða umferð bifreiða og reiðhjóla í hliðargötunni sem þar verður. Því er ekki fyrir að fara í þessari nálgun, sem er glatað tækifæri, því miður. Höfundur er skipulagsverkfræðingur. Heimildir: Ringby/Letbanesamarbejdet: Udredning om Letbane på Ring 3. Udkast 11.1.2013. Glostrup Kommune. ViaTrafik: Vej- og Trafikplan 2014 analyser. Avisen.dk: Letbane er stor success. Sótt 9.2.2026 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Borgarlína Samúel Torfi Pétursson Mest lesið Orð skipta máli Birgitta Þorsteinsdóttir Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson Skoðun Innan ESB „mun Ísland stjórna fiskveiðum í Norður-Atlantshafi“ Óli Rúnar Ástþórsson Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir Skoðun Íslenskir kjósendur eða evrópskir embættismenn? Ólafur Hannesson Skoðun Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innan ESB „mun Ísland stjórna fiskveiðum í Norður-Atlantshafi“ Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Jákvæða hliðin á minkamálinu Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir kjósendur eða evrópskir embættismenn? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason skrifar Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Umræða um dánaraðstoð krefst mannúðar og varfærni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hver lygi skapar skuld við sannleikann Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Herskylduhrakspár Haraldar skekkja raunhæfa sýn á varnarmál Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun
Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar
Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar
Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar
Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar
Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun