Mikið svifryk þrátt fyrir rykbindingu Kjartan Kjartansson skrifar 12. febrúar 2026 14:00 Bílar spæna upp götum og spúa útblæstri sem veldur loftmengun, sérstaklega þegar veður er kalt og hægt. Myndin er úr safni. Vísis/Vilhelm Mikil loftmengun mældist í höfuðborginni í morgun þrátt fyrir að götur hafi verið rykbundnar fyrr í vikunni. Líklegt er að mengun verði áfram viðvarandi vegna bílaumferðar og veðuraðstæðna.
Styrkur svonefnds PM10-svifryks mældist hár í loftgæðamælistöðum í borginni í morgun. Gildið nálgaðist að vera tvöfalt yfir heilsuverndarmörkum fyrir heilan sólarhring á hádegi. Rykið kemur frá umferð en veðuraðstæður valda því að það þyrlast upp af þurrum götum og helst á lofti, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Rykbinding sem ráðist var í aðfararnótt miðvikudags er það sögð duga skammt til vegna aðstæðna. Afar þurrt hefur verið í veðri á höfuðborgarsvæðinu um margra vikna skeið og ekki er útlit fyrir vætu fyrr en um miðja næstu viku. Því segist borgin ætla að skoða frekari rykbindingu til að draga úr mengun. Rykbindingin er sögð samvinnuverkefni borgarinnar og Vegagerðarinnar. Á meðan mengun er svo mikil beinir borgin því til aldraðra, barna og þeirra sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu. Einnig hvetur hún almenning til að draga úr notkun einkabílsins og fyrirtæki til að hvetja starfsfólk sitt til að vinna fjarvinnu á svifryksdögum.
Reykjavík Umhverfismál Bílar Jarðefnaeldsneyti Loftgæði Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira