„Gott að kveljast líka og vita upp á sig skömmina“ Andri Már Eggertsson skrifar 12. febrúar 2026 22:00 Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, var ánægður með sigurinn Vísir / Diego Valur vann sautján stiga sigur gegn ÍA 102-85. Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, var ánægður eftir sigur kvöldsins. „
Það var vont að fá á sig þetta áhlaup undir lok fyrri hálfleiks. Við vorum búnir að byggja upp ágætis forskot og svo vorum við hrikalega mistækir varnarlega og við buðum þeim aftur inn í leikinn.“ „Þeir byrjuðu síðari hálfleik vel en síðan náðum við að læsa vörninni og þá kom betri taktur sóknarlega,“ sagði Finnur Freyr og hélt áfram að tala um áhlaup ÍA sem endaði í sautján stigum í röð. „Við gerðum mistök varnarlega. Þeir eru með frábæra leikmenn og það var erfitt að eiga við stóru turnana þeirra undir körfunni. Mér fannst við vera að klikka og gefa þeim auðveldar körfur.“ Finnur var ánægður með þær áherslubreytingar sem liðið gerði á Darryl Latrell Morsell sem var með 16 stig í fyrri hálfleik en aðeins 6 stig í síðari hálfleik. „Við vorum að gefa honum of mikið pláss í þessum stuttu skotum en gerðum svo vel í að taka þau í burtu. Við fengum svo færri hraðar sóknir á okkur þar sem hann er frábær.“ Aðspurður út í hvort Valsmenn höfðu gott af pásunni sem fylgdi því að vera ekki að spila í VÍS-bikarnum í síðustu viku tók Finnur undir það. „Það er gott að kveljast líka og vita upp á sig skömmina og vita hversu ömurlegir við vorum búnir að vera. Við vorum í þjáningunni saman að djöflast og menn höfðu gott af því,“ sagði Finnur Freyr að lokum.
Valur Bónus-deild karla Mest lesið Kristján sigraði Bakgarðshlaupið Sport Áfall fyrir landsliðið og Söndru sem var borin af velli Fótbolti Ellefu ára senuþjófur fékk að vaka: „Ef hann ætlar að vinna þá þarf hann pepp“ Sport Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Enski boltinn „Ég hef ekki séð svona áður hjá neinum leikmanni“ Íslenski boltinn Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Enski boltinn Aðalmarkvörður Íslands úr leik og Arnar kallaði á Anton Fótbolti Orri fékk rautt fyrir kjaftbrúk í blálokin Fótbolti „Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“ Íslenski boltinn Jóhanna um landsliðið: „Auðvitað er það svekkjandi“ Handbolti Fleiri fréttir Áfall fyrir landsliðið og Söndru sem var borin af velli Ellefu ára senuþjófur fékk að vaka: „Ef hann ætlar að vinna þá þarf hann pepp“ Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Jóhanna um landsliðið: „Auðvitað er það svekkjandi“ Íslendingarnir sáu um frækinn sigur en Kristall fékk rautt „Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“ „Svo kemur bara mark eftir mark eftir mark“ „Hefði verið sætt að ná þrennu í fyrri hálfleik“ Uppgjörið: Keflavík - Fram 2-2 | Stig sem gerir ekki mikið fyrir bæði lið „Ætlum að halda áfram að vera hugrakkir“ Orri fékk rautt fyrir kjaftbrúk í blálokin Uppgjörið: ÍA - Breiðablik 4-1 | Skítlétt á Skaganum „Held meira að segja að boltinn hafi verið komin inn áður en ég snerti hann“ Aðalmarkvörður Íslands úr leik og Arnar kallaði á Anton Reynir vann Íslendingana sem tapa nánast aldrei Uppgjörið: FH - Stjarnan 5-2 | Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Haukar - Valur 28-24 | Stórleikur Jóhönnu og Haukar með fullt hús stiga Stefán Ingi skoraði í jafntefli Guðlaugur náði í stig gegn Mikael og Daníel eftir dramatík Uppgjörið: ÍBV - Valur 1-1 | Grátlegt jafntefli hjá Eyjamönnum Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Stefán Teitur skoraði Brynjar skoraði í sigri Sønderjyske Atlético vann Madrídarslaginn Rangers vann Celtic Sturlaðar og geggjaðar móttökur og freyðivínsglasið afhent Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Littler hótar að hætta að keppa í Hollandi Sjá meira