Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Bjarki Sigurðsson skrifar 13. febrúar 2026 23:26 Eggert Hjartarson er formaður Prýðisfélagsins Skjaldar, hverfisfélags Skerjafjarðar. Vísir/Lýður Valberg Íbúar í Skerjafirði eru hræddir um að Reykjavíkurborg gangi á bak orða sinna og hefji landfyllingu á svæðinu án tilskilinna leyfa. Þrátt fyrir mikla andstöðu íbúa stefnir allt í að síðasta náttúrulega fjara suðurhluta Reykjavíkur verði að landfyllingu.
Landfylling vegna nýja Skerjafjarðar hefur verið á teikniborðinu síðan 2019. Íbúar hafa svo árum skiptir lagst gegn henni, þar sem fjaran er mikilvæg samfélaginu og náttúrunni og þar leynast minjar frá því á stríðsárunum. Hér má sjá hvar fyrirhuguð landfylling er.Vísir/Hjalti Óttast að borgin vaði af stað Nú er búið að girða af svæði við suðurenda Reykjavíkurflugvallar þar sem unnið er að sjóvörn fyrir brúarenda fyrirhugaðrar Fossvogsbrúar. Fjaran sem landfyllingin á að taka yfir er þar rétt við hliðina á og óttast íbúar að þeir hafi tapað baráttunni. „Við lögðum fram spurningar um hvernig staðan væri á uppfyllingunni. Þeir sögðu að það ætti að fara fram eitthvað umhverfismat en við erum ekki viss um að beðið verði eftir þeirri skýrslu og það verði farið af stað með óafturkræfar framkvæmdir,“ segir Eggert. Hvers vegna óttist þið það? „Maður sér það á framkvæmdavilja borgarinnar. Hún er voða dugleg að fylla þar sem henni dettur í hug. Það er búið að tala um að það komi uppfylling hér þannig við óttumst að þeir fari bara af stað með það.“ Vinsælt útivistarsvæði Í fjörunni er mikið fuglalíf allan ársins hring og oft má sjá seli spóka sig þar, börnum og öðrum vegfarendum til mikillar gleði. „Hún er mjög vinsæl sem útivistarsvæði og fólk nýtur þess að vera hér á sumrin og vorin, að vera úti í náttúrunni og fylgjast með fuglalífi og öðru náttúrulífi á svæðinu,“ segir Eggert. Vilja halda fjörunni hreinni Fleiri hópar hafa lagst gegn landfyllingunni, þar á meðal Hafrannsóknunarstofnun og Landvernd. „Það er mjög mikilvægt að þessi svæði fái að haldast óbreytt og óskemmd,“ segir Eggert. Fjallað var um málið í sjónvarpsfréttum Sýnar.
Reykjavík Skipulag Húsnæðismál Umhverfismál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Sjá meira