Ætlum við að skjóta fyrst og spyrja svo? Þórir Garðarsson skrifar 13. febrúar 2026 20:00 Borgarlína er ekki lengur einfalt samgönguverkefni. Hún er orðin ein stærsta pólitíska ákvörðun sem tekin hefur verið um framtíð Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins. Ekki aðeins vegna þess að um hundruð milljarða króna er að ræða, heldur vegna þess að verkefnið er órjúfanlega tengt skipulagsstefnu borgarinnar: þéttingu byggðar, breytingum á gatnakerfi, sérakreinum og varanlegum þrengingum á helstu stofnæðum. Þetta er heildarstefna sem mun móta borgarmyndina, húsnæðismarkaðinn, atvinnusvæði og daglegt líf fólks til áratuga. Slíkar ákvarðanir kalla á heiðarlega og gagnsæja umræðu. Sú umræða hefur ekki farið fram með fullnægjandi hætti. Gögn áður en steypt er Þegar stærsta samgöngufjárfesting í sögu höfuðborgarsvæðisins er annars vegar þarf að liggja fyrir á hverju áformin byggja: Hvaða upplýsingar eru tiltækar um nýtingu núverandi almenningssamgangna? Hver er raunveruleg sætanýting? Hvar og hvenær er raunverulegt álag? Hversu stóran hluta dagsins er kerfið vannýtt? Hvers vegna velur fólk Strætó? Hvers vegna velur fólk ekki Strætó? Slík greining er ekki flókin. Engar upplýsingar liggja þó fyrir um að hún hafi verið gerð. Með sjálfvirkri farþegatalningu í vögnum Strætó væri hægt að fá nákvæma og hlutlæga mynd af nýtingu leiða og álagsdreifingu. Kostnaðurinn við slíka snjallvæðingu er lítill miðað við umfang þeirra framkvæmda sem fyrirhugaðar eru. Að ráðast í varanlegar skipulagsbreytingar án þess að fullnægjandi mæligögn liggi fyrir er einfaldlega ekki ábyrg nálgun. Bættar strætósamgöngur þola ekki bið Farþegar upplifa óreglulega tíðni, ófyrirsjáanlegan ferðatíma og troðning á háannatíma, á sama tíma og vagnar eru oft hálftómir utan anna. Þetta eru viðfangsefni sem þarf að bregðast við núna. Borgarlína mun ekki bæta þjónustu almenningssamgangna á morgun. Fólk sem notar Strætó í dag getur ekki beðið í tíu ár eftir betri lausn. Hægt er að bæta þjónustuna strax Snjallvæðing Strætó felur ekki aðeins í sér sparnað. Hún felur í sér betri þjónustu. Með nákvæmum mælingum er hægt að: Auka tíðni þar sem raunveruleg þörf er mest. Draga úr troðningi á háannatíma. Setja minni vagna þar sem það hentar betur. Stilla leiðakerfið eftir raunverulegri eftirspurn. Áhrifin fyrir farþega væru bein: styttri biðtími, minni óvissa og skilvirkari þjónusta. Slíkar umbætur krefjast ekki margra ára skipulagsferlis, uppkaupa lóða eða umfangsmikilla steypuframkvæmda. Þær krefjast fyrst og fremst vilja til að mæla, greina og laga. Þetta er spurning um forgangsröðun Umræðan snýst ekki um að vera með eða á móti almenningssamgöngum. Þvert á móti. Öflugar almenningssamgöngur eru mikilvægar í nútímaborg. Spurningin er hvernig best sé að nýta fjármuni skattgreiðenda og í hvaða röð eigi að ráðast í aðgerðir. Á að binda höfuðborgarsvæðið í ósveigjanlegt og kostnaðarsamt kerfi til áratuga áður en fullnægjandi gögn liggja fyrir um þörfina? Í komandi sveitarstjórnarkosningum á höfuðborgarsvæðinu mun þessi spurning verða ein af þeim stærstu. Ekki vegna þess að einhver vilji stöðnun. Heldur vegna þess að stórar ákvarðanir krefjast skýrra gagna, ábyrgðar og raunhæfrar forgangsröðunar. Höfundur er stjórnarmaður í Félagi Sjálfstæðismanna í Grafarvogi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórir Garðarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarlína Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar