C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki Sindri Sverrisson skrifar 14. febrúar 2026 17:04 Louis Reed var fagnað vel eftir aukaspyrnumarkið gegn Burnley í dag. George Wood Stuðningsmenn Burnley hafa mátt þola miklar raunir í ensku úrvalsdeildinni í vetur en þeir bauluðu á leikmenn liðsins í dag, eftir 2-1 tap á heimavelli gegn C-deildarliði Mansfield Town í bikarkeppninni.
Mansfield komst með sigrinum áfram í 5. umferð enska bikarsins, í fyrsta sinn í meira en hálfa öld. Bikarhetja liðsins, Louis Reed sem skoraði tvennu í 4-3 sigri geng Sheffield United í 3. umferð, tryggði Mansfield sigurinn í dag með sannkölluðu draumamarki. Hann skoraði þá beint úr aukaspyrnu, yfir vegginn og efst í hornið, á áttugustu mínútu. Josh Laurent hafði komið Burnley yfir á 21. mínútu en Rhys Oates jafnaði metin fyrir gestina á 53. mínútu. Nú verður spennandi fyrir Mansfield-menn að sjá hverjum liðið mætir í 5. umferð en dregið verður á mánudagskvöld. Norwich er einnig komið áfram, eftir 3-1 sigur gegn West Brom, en framlengja þurfti leik Southampton og Leicester þar sem staðan var jöfn, 1-1, eftir 90 mínútur. Fyrr í dag sló West Ham út Burton, í framlengdum leik, og þá hefur verið fjallað um 2-0 sigur Manchester City á Salford. Klukkan 17:45 hefst leikur Aston Villa og Newcastle, og klukkan 20 er svo leikur Liverpool og Brighton.
Enski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Sjá meira